Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Knútur Bjarnason
Rúnar Þór Árnason
Gunnar Sv. Friðriksson
Hólmar Björn Sigþórsson
Linda Björk Ingvadóttir
Kristján Þór Sveinsson
María Steinunn Jóhannesdóttir
Ragnheiður Árnadóttir
Vista
einbýlishús

Reykjabraut 17

815 Þorlákshöfn

69.900.000 kr.

501.435 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2212658

Fasteignamat

58.750.000 kr.

Brunabótamat

65.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1962
svg
139,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Reykjabraut 17, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða gott og vel skipulagt 4ra herbergja einbýlishús og bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 139,4 fm. þ.a er bílskúr 34,3 fm. Fallegur skjólsæll garður með heitum potti og góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofa, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gang, þvottahús, geymslu (búr) og bílskúr. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með fatahengi og kommóðu.
Stofan / borðstofa:  Rúmgóð og björt, parket á gólfi.
Eldhús:  Með góðri Fagus innréttingu,  nýr bakaraofn, helluborð, flísar milli skápa, góður borðkrókur, flísar á gólfi.  
Hjónaherbergi:  Rúmgott hjónaherbergi, nýir innfelldir Ikea fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, nýr hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, útgengi út á suður sólpall, parket á gólfi. 
Gangur: Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu, handklæðaofn, hiti í gólfi, flísar á gólfi og plötur frá Þ.Þ á veggjum. 
Þvottahús: Inn af eldhúsi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, útgengi út í garð, vaskur, skápur, hillur, málað gólf.
Geymsla / búr: Inn af þvottahúsi, hillur, dúkur á gólfi. 
Bílskúrinn:  Rúmgóður bílskúr, heitt og kalt vatn, hiti, 3ja fasa rafmagn, rafhleðslustöð, bílskúrshurðaopnari, hitastýring fyrir heitan pott í bílskúr, ómálað gólf.
Lóð: Fallegur einstaklega skjólsæll og gróinn garður. Framan við húsið er malbikuð innkeyrsla, stétt að og umhverfis húsið er hellulögð. Aftan við húsið er stór suður sólpallur með heitum potti, ljós á palli.  
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi:
* Nýr fataskápur í hjónaherbergi og eitt svefnherbergi.
* 2025 Ný blöndunartæki á vaski inn á baðherbergi og ný blöndunartæki í sturtu. 
* 2024 Húsið málað að innan.
* 2021  Skipt um rafmagnsrofa og tengla að mestu leiti. 
* 2021 Nýjar flísar á forstofu, gang og eldhúsi.
* 2021 Nýtt parket á svefnherbergjum og stofu.
* 2021 Ný loftklæðning í hjónaherbergi og einu svefnherbergi. 
* 2021 Nýjar flísar milli skápa í eldhúsi. 
* Baðherbergið var endurnýjað 2007.
* Eldhús endurnýjað 2007.
* Flestir gluggar og gler voru endurnýjaðir 2002.

GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected]

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi. 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

img
Hólmar Björn Sigþórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Helgafell fasteignasala ehf.
Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
img

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jan. 2024
51.750.000 kr.
56.000.000 kr.
139.4 m²
401.722 kr.
5. mar. 2021
30.500.000 kr.
39.000.000 kr.
139.4 m²
279.770 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Helgafell fasteignasala ehf.

Helgafell fasteignasala ehf.

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík

Hólmar Björn Sigþórsson

Stórhöfði 33, 2. hæð, 110 Reykjavík