Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
einbýlishús

Langabrekka 26

200 Kópavogur

189.900.000 kr.

725.363 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2063722

Fasteignamat

143.050.000 kr.

Brunabótamat

119.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
261,8 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir: Mikið endurnýjað og vel skipulagt 261,8 fm. einbýli við Löngubrekku 26, 200 Kópavogi, með tveimur útleigueiningum. Fjögur svefnherbergi eru í eigninni. Á efri hæð hússins eru tvö herbergi, stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél. Á neðri hæð hússins er 3ja herbergja íbúð sem er í útleigu. Bílskúrinn er á tveimur hæðum og er neðri hæðin nýtt sem íbúð og er í útleigu. Þrír inngangar eru í húsið. Gróinn garður með stórum palli sem snýr í suður fyrir framan hús. Hellulögð innkeyrsla með stæði fyrir tvo bíla. Heildareignin er skráð samtals 261,8 fm.

Staðsetning eignarinnar er á grónum og eftirsóttum stað í Kópavogi.

Nánari upplýsingar veitir Borga Harðardóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 821 2412, tölvupóstur [email protected]

Eignin Langabrekka 26 er skráð sem hér segir hjá HMS:
Hæð, birt stærð 85,9 fm. 
Neðri hæð, birt stærð 85,9 fm. 
Bílskúr/geymsla, birt stærð 90 fm. Sitthvor hæðin er 45 fm. 
 
Lóð er tyrft og er með stórum palli sem snýr í suður. Gróðurhús er á lóðinni sem þarfnast lagfæringar. Stærð lóðar 558 fm.

 
Aðalhæð: Komið er inn í parketlagða forstofu með stórum fataskáp sem nær upp til lofts. Á herbergjagangi eru hjónaherbergi, herbergi og baðherbergi. Baðherbergið var allt endurnýjað og stækkað árið 2014 og er með flísalögðum veggjum og gólfi, hiti í gólfi, vegghengdu salerni, góðri baðinnréttingu frá InnX, "walk-inn" sturtu með hertu glerskilrúmi og aðstöðu fyrir þvottavél. Árið 2014 var veggur á milli eldhúss og borðstofu brotinn niður. Eldhúsið er opið og rúmgott með fallegri eldhúsinnréttingu frá InnX og frítt standandi eyju. Mjög gott skápa- og borðpláss, ofn er í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Í eldhúsi var hringstigi niður á neðri hæð, sem var lokað árið 2014. Úr eldhúsi er gengið inn í borðstofu. Stofa er björt með glugga á tvo vegu. Öll gólf eru parketlögð með harðparketi nema baðherbergi sem er með flísalagt gólf.

Neðri hæð: Komið er inn í parketlagða forstofu. Á gangi er parketlagt herbergi, sér klósettaðstaða og  baðherbergi með sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél, flísar á gólfi. Eldhúsið er opið, með sérsmíðaðri innréttingu og eldavél. Mjög gott skápa- og borðpláss. Úr eldhúsi er gengið inn í stofu og innaf stofu er herbergi. Stórt geymslurými og hitakompa er á neðri hæð. Öll gólf eru parketlögð með harðparketi og gólfhiti að hluta, nema baðherbergi sem er flísalagt og geymslurými og hitakompa eru með máluð gólf.

Bílskúr: Samtals 90 fm. á tveimur hæðum. Rafdrifin bílskúrshurð.
Neðri hæð bílskúrs hefur verið nýttur sem íbúðarhluti og er í útleigu. Stórt alrými með eldhúsinnréttingu, plastparket á gólfi, á salerni eru flísar á gólfi.
 
Að sögn seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir og viðhald átt sér stað undanförnum árum:
2025 – Skipt um stóra gluggann í stofu
2025 – Byrjað að mála hús að utan
2025 – Nýtt parket á gólf í íbúð á neðri hæð. Hiti settur í gólf að hluta
2025 – Nýr sturtuklefi og klósett í íbúð á neðri hæð
2022 – Skipt um gler í langa glugganum í stofu
2022 – Skipt um glugga í hjónaherbergi
2020 – Pallur smíðaður
2019 – Nýtt parket á gólf í íbúð á neðri hæð. Hiti settur í gólf að hluta
2019 – Nýtt eldhús, klósett og fataskápur í íbúð á neðri hæð bílskúrs
2018 – Kópavogsbær setti kalt vatn að húsi Löngubrekkumegin
2017-2018 – Garður tekinn og drenað meðfram húsi
2017 –          Skipt um járn og pappa á þaki
2015 –          Hús málað að utan
2014 –          Veggur brotinn niður milli eldhúss og borðstofu á aðalhæð
2014 –          Ný eldhúsinnrétting frá InnX á aðalhæð
2014 –          Sérsmíðuð eldhúsinnrétting á neðri hæð
2014 –          Baðherbergi á aðalhæð stækkað, flísalagt, hiti settur í gólf. Innrétting frá InnX. Skipt um glugga
2014 –          Sett ný hitaelement á alla ofna
2014 –          Sett upp sér tafla vegna eldhúseyju, undir skáp við hlið uppþvottavélar
2014-2015 – Dregið í nýtt rafmagn og sett upp ný rafmagnstafla
2014 –           Lokað á milli hæða

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

img
Borga Harðardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valborg fasteignasala
Nóatún 17, 105 Reykjavík
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
img

Borga Harðardóttir

Nóatún 17, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. mar. 2014
47.400.000 kr.
52.000.000 kr.
261.8 m²
198.625 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone

Borga Harðardóttir

Nóatún 17, 105 Reykjavík