Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Kambsvegur 20

104 Reykjavík

60.900.000 kr.

917.169 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2017870

Fasteignamat

55.450.000 kr.

Brunabótamat

39.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1961
svg
66,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 13. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir einstaklega bjarta, fallega og vel skipulagða 2-3 herbergja íbúð á eftirsóttum stað við Kambsveg 20. Um er að ræða heillandi eign á 3. og efstu hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu 5 íbúða fjölbýlishúsi – tilvalin fyrsta eign fyrir þá sem vilja stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði.

Húsið hefur hlotið gott viðhald síðustu ár en m.a. hefur húsið verið múrviðgert, málað, skipt um neyslu- og frárennslislagnir og fleira.
Fasteignin er skráð 66,40m2 en gólfflötur er þó stærri þegar nánar er að gáð. Yfir fasteigninni er parketlagt risloft þar sem gólfflötur er um 30m2. Risið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika til að mynda sem vinnurými eða jafnvel svefnherbergi.
Hringstigi tengir íbúð og ris saman af gangi íbúðarinnar. Út frá stofu er gengið út á vestur-svalir. Fallegt útsýni er úr íbúðinni, m.a. til Esju, Úlfarsfells og Bláfjalla.


Nánari lýsing:
Forstofa / Gangur:
Komið er inn í snyrtilega og rúmgóða forstofu sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Við inngang er nýlegur og rúmgóður fataskápur, fataslá og skóhillur. Vandað viðarparket er á gólfi íbúðarinnar.
Stofa: Björt og opin stofa með stórum glugga. Gluggar eru á tvo vegu, til vesturs og norðurs og útgengt er á suðvestur svalir. Skemmtilegt rými sem rúmar bæði borð- og setustofu.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott herbergi. Háir og rúmgóðir fataskápar. Úr herberginu er fallegt útsýni til til norðurs þar sem sést vel til Esju.
Eldhús: Bjart og smekklegt með glugga á tvo vegu og góðu útsýni, svo sem til Bláfjalla, Úlfarsfells og Esju. Innrétting var endurnýjuð fyrir nokkrum árum ásamt blöndunartækjum, helluborði og bökunarofni.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað (2021). Flísar á gólfi og veggjum. Þar er innangeng sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og falleg vaskinnrétting með spegli með innbyggðri lýsingu.
Risloft: Hringstigi er innan úr íbúðinni og upp á ris. Risið er parketlagt, klætt með timburklæðningu og málað, með tveimur ofnum og tveimur opnanlegum Velux þakgluggum (úr þeim sem snýr í austur er frábært útsýni). Þá eru jafnframt rafmagnstenglar og tengi fyrir ljós í risinu.
Geymsla 1: Inn af risinu er svo köld geymsla með opnanlegum Velux glugga.
Geymsla 2: Önnur geymsla fylgir eigninni en hún er staðsett á neðsu hæð við inngang.
Bílastæði: Bílastæði er í innkeyrslu að hægri hlið hússins til notkunar fyrir 2. og 3. hæð en samkomulag hefur verið um að íbúðin noti hægri hluta innkeyrslunnar.
Þvottaherbergi: Sameiginlegt þvottahús er í húsinu þar sem hver íbúð hefur sína vél. Góðir gluggar eru í rýminu og útgengi í innkeyrslu á norð-austurhlið hússins.

Lóð: Sameiginleg 826 fm gróin lóð. Framan við húsið er stétt að húsi og grasi gróin lóð og á baklóð er stór og skjólsæll gróinn garður. Við hliðina á garðinum er leikvöllur.

Helstu endurbætur síðustu ár
* 2025 Nýtt teppi sett á stigagang í sameign. Ný ljós og ljósrofar á stigagangi í sameign. Nýtt útiljós með hreyfiskynjara sett upp.
* 2024 Stigagangur í sameign málaður.
* 2023 Hús málað að utan. Svalir, gluggar og hurðir málaðar.
* 2022 Húsið var múr og sprunguviðgert að utan.
* 2021 Neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
* 2021 Skipt um gler og lista í stóra glugga í sameign á framhlið hússins.
* 2020 Frárennslislögn endurnýjuð.
* 2019 Skipt um járn á þaki og þak klæðning var lagfærð þar sem þurfti. Þakrennur endurnýjaðar.
* 2002 Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð.

Falleg og góð eign á rólegum og þægilegum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, íþróttamiðstöð, verslanir, strætóskýli, Laugardalinn o.fl.

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða [email protected]

img
Davíð Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Davíð Ólafsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. okt. 2022
35.950.000 kr.
53.500.000 kr.
61.5 m²
869.919 kr.
11. júl. 2019
31.100.000 kr.
37.500.000 kr.
61.5 m²
609.756 kr.
28. sep. 2017
24.350.000 kr.
33.500.000 kr.
61.5 m²
544.715 kr.
14. nóv. 2012
14.850.000 kr.
20.000.000 kr.
61.5 m²
325.203 kr.
11. júl. 2006
12.040.000 kr.
16.500.000 kr.
61.5 m²
268.293 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Davíð Ólafsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík