Opið hús: Vefarastræti 34, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 14. apríl 2026 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.
Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
Nánari lýsing.
Anddyri/forstofa: Rúmgóð og björt með fataskáp, glugga með opnanlegu fagi og flísum á gólfi.
Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott með stórum glugga og fataskáp sem nær upp í loft. Á gólfi er parket.
Svefnherbergi 2: Bjart og rúmgott með stórum glugga og fataskáp sem nær upp í loft. Á gólfi er parket.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með miklu skápaplássi og stórum glugga. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Falleg innrétting, vegghengt WC, handklæðaofn, ,,walk in" sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti er í gólfum og á gólfi og á veggjum eru flísar.
Eldhús: Í opnu rými með stofu, falleg hvít L-laga innrétting með ágætu skápaplássi, hillum og góðri vinnuaðstöðu. Á gólfi er parket.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi, gólfsíðum gluggum og útgengi á suður svalir eignar.
Sameign: Snyrtileg með flísum á gólfi í anddyri og á fyrstu hæð en teppi á stiga og á stigapöllum efri hæða. Í húsinu er lyfta, á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og eign tilheyrir bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð.
Falleg og vel skiplögð íbúð í nýlegu lyftuhúsi í nýlegu hverfi í Mosfellsbæ þar sem stutt er í fallega náttúru.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.