Lýsing
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og rúmgóða 98,8 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, gengið upp einn stiga, ásamt stæði í bílageymslu, þvottahúsi og geymslu innan íbúðar og rúmgóðum vesturpalli. Stutt er á stofnbrautir og almenn þjónusta í næsta nágrenni.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: [email protected]
Forstofa er með parketi á gólfi og skápum.
Stofa er rúmgóð með útgengi út á timburlagða girta verönd til vesturs sem nýtur sólar seinni part dags og kvöldsólar.
Eldhús er með parketi á gólfi og viðarinnréttingu ásamt flísum á milli efri og neðri skápa, inn af eldhúsi mynda stofa og borðkrókur skemmtilegt alrými.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, baðkar með sturtu, innrétting undir vask og skápur.
Þvottahús er innan íbúðar og er með flísum á gólfi og hillum.
Geymslurnar eru tvær önnur innan íbúðar og önnur í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Stæði í bílageymslu er innangengt úr stigagangi.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.