Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Vista
raðhús

Klettaborg 38

600 Akureyri

83.900.000 kr.

720.172 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2259181

Fasteignamat

82.200.000 kr.

Brunabótamat

61.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
116,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Klettaborg 38 - Góð 4 herbergja, 116,5 fm raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á Brekkunni. Við eignina er rúmgóð verönd til suðurs með rafmagnspotti og geymsluskúr. 
Eignin skiptist í:
Neðri hæð: forstofa, edhús og stofa/borðstofa í opnu rými, þvottahús og geymsla.
Efri hæð: hol, baðherbergi og 3 svefnherbergi.

Neðri hæð:
Forstofa
 er með flísum á gólfi og opnu fatahengi. 
Eldhús er með flísum á gólfi. Þar er mjög rúmgóð ljós innrétting með innbyggðri uppþvottavél, nýlegu helluborði, ofni í vinnuhæð og pláss fyrir ísskáp og örbylgjuofn. 
Stofa/borðstofa eru samliggjandi og í hálfopnu rými með eldhúsi. Þar eru flísar á gólfum og úr stofu er gengið út á rúmgóðan timburpall með heitum potti.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla er við hliðina á þvottahúsinu. Þar eru flísar á gólfi og allar lagnir til staðar svo að hægt væri að breyta rýminu í gestasalerni. 

Efri hæð:
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum. Eitt þeirra er með flísum á gólfi en hin tvö eru með korki. Úr hjónaherbergi er útgengt á svalir til suðurs. 
Baðherbergi er mjög rúmgott með góðri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og glerskilrúmi, salerni og handklæðaofni. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.

- Gólfhiti er á allri í búðinni.
- Heitur pottur og sólpallur til suðurs. 
- Geymsluskúr á lóð.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. maí. 2010
21.450.000 kr.
22.500.000 kr.
116.5 m²
193.133 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone