Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 43,0 m2 2ja herbergja íbúð með sér inngangi af svölum við Iðnbúð 2 í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi ásamt geymslulofti sem er ekki inn í skráðum fermetrum. Svalir í suðurátt. Sameinlegt þvottahús er á hæðinni með þar sem hægt er að setja þvottavél og þurrkara.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sér inngang af utanáliggjandi álstiga austan megin við húsið (bakvið).
Komið er inn í rúmgóða forstofu.
Alrými sem rúmar eldhús og stofu er með flotuðu og lökkuðu gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt
Eldhúsið er með hvítum innréttingum og stein borðplötu.
Geymsluloft er fyrir ofan baðherbergi. Er ekki inn í skráðum fermetrum.
Baðherbergið er með sturtu, vegghengdu salerni og skolvaski. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergið er rúmgott með opnum fataskáp.
Verð kr. 43.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.