Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
195,4 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Einstaklega falleg og björt 7 herbergja fjölskyldueign á tveimur hæðum með sérinngangi í góðu fjórbýli við Glitvelli 3 í Hafnarfirði.
Eignin er alls 195,4 fm með 5 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og útsýnissvölum sem snúa í suður.
Aukin lofthæð er á efri hæðinni og um 10-15 fm undir súð sem ekki eru inni í fermetrafjölda og eru vel nýttir. 


Nánari lýsing:
Neðri hæð með sérinngangi.
Góð útigeymsla er fyrir framan inngang í íbúðina sem er upphituð.
Forstofa með flísum á gólfi og skápum 
Eldhús og stofa í fallegu og björtu alrými með útgengt út á góðar suðursvalir.
Eldhús með hvítri innréttingu, granít á bekkjum. Ofn í vinnuhæð, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp, innfelld uppþvottavél.
Eldunareyja með granít á bekkjum og gashelluborði. Gott geymslupláss er í eldhúsinu, möguleiki að sitja við eyjuna og pláss fyrir 4 stóla.
Sjónvarpshol er undir stiganum sem rammar rýmið vel inn.
Hjónaherbergi með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Forstofuherbergi með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góðir gluggar sem veita birtu inn, tvöfaldur vaskur með góðu skápaplássi undir.
Baðkar og sturta með innfelldum blöndunartækjum.
Rúmgóð geymsla með hillum, útgengt er út á stigapall beint úr geymslunni og því hægt að nota hana sem annan inngang.


Efri hæð:
Stigi milli hæða er teppalagður og breiður.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parket á gólfi. 
Sjónvarpsholið er mjög rúmgott og tengir öll rými efri hæðarinnar saman. 
Baðherbergi með rúmgóðri sturtuog innbyggðum blöndunartækjum. Falleg innrétting, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara með tauskúffum undir. Gluggi og gott geymslupláss.

*Gólfefni íbúðar er parket og 60*60 flísar.
*Hiti er í stigapalli, tröppum og gangstétt.
*Aukin lofthæð er á efri hæð sem gefur rýminu skemmtilegan blæ
*Fermetrar undir súð ( 10-15) sem ekki eru gefnir upp í fermetrafjölda eignar,  sem eru vel nýttir í geymslurými.
*Íbúar hafa skipt með sér bílastæðum og eru tvö stæði á íbúðina ( ekki þinglýst). Komin er rafhleðslustöð við bílastæði íbúðar.
*Rúmgóð herbergi
*Mögulegt að setja lokun á svalirnar.
*Velux gluggar á efri hæð.
*Eignin er ekki í samræmi við upphaflegar teikningar þar sem þvottahús var teiknað undir stiga, fataherbergi á efri hæð einnig tekið og sjónvarpshol stækkað.

Einsaklega falleg eign sem heldur vel utanum fjölskylduna á þessum frábæra stað á Völlunum þar sem stutt er í skóla, leikskóla, tengibrautir og verlsanir.
Sjón er sögu ríkari !!



Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected] og Stefán Rafn Sigurmannsson löggiltur fasteignasali í s. 655-7000 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. mar. 2022
71.300.000 kr.
99.000.000 kr.
195.4 m²
506.653 kr.
1. okt. 2020
65.700.000 kr.
74.000.000 kr.
195.4 m²
378.710 kr.
30. júl. 2007
4.750.000 kr.
31.000.000 kr.
195.4 m²
158.649 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone