Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Freyja Sigurðardóttir
Ágústa Hauksdóttir
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir
Glódís Helgadóttir
Hlynur Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2026
svg
210,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt einbýli á einni hæð, skráð 180 fm auk innb. bílskúr 30,2 fm samtals stærð því 210,2 fm við Virkisás 2 í Áslandi 4 Hafnarfirði.
Frábær staðsetning á hornlóð á þessum mikla útsýnisstað, stór og fallegur pallur snýr í suð-vestur með skjólgirðingum og möguleika á heitum potti. Aðgengi/bílastæði er hellulagt með snjóbræðslu.
Ídráttur fyrir rafbílahleðslu verður lagður. Húsið afhendist við kaupsamning, fullbúið með lokaúttekt og er laust til afhendingar. 

* Hægt að hafa 4 svefnherbergi. 
* Glæsilegt útsýni.
* Stór pallur til suðvestur og suðausturs.
* Tengimöguleiki fyrir heitum potti.
* loftdúkur/hljóðeinagrun
* Gólfsíðir gluggar.
* Gólfhiti.
* Stórt alrými. 
* Góður innbyggður bílskúr. (epoxymálning á gólfum)


Eignin skiptist þannig: Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp. Þaðan er innangengt í rúmgóðan fullbúinn bílskúrinn með epoxy gólfi. Mjög fallegt flísalagt baðherbergi með fínni sturtuaðstöðu, vönduð innrétting og handklæðaofn. Svefnálma: með tveimur rúmgóðum barnaherbergjum með skápum. Glæsilegt og bjart eldhús með vönduðum  innréttingum, steinn á borðplötum, ofnum í vinnuhæð og góðum tækjum. Glæsileg eyja með span helluborði, eyjan er klædd með steini og viði. Útgengt frá eldhúsi/stofu á stóran suðvestur pall. Eldhúsið er opið inn í rúmgóða bjarta stofuna og borðstofuna. Rúmgott sjónvarpsherbergi sem hægt er að breyta í fjórða svefnherbergið. Þvottaherbergi með innréttingu fyrir þvottatæki ásamt annarri innréttingu með vask. Rúmgott hjónaherbergi með útengi á suðaustur pall. Fatarherbergi að innan ásamt baðherbergi með baði, upphengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskápur. Gluggi á baði.

Lóðin verður grófjöfnuð.

Frábær staðsetning í suður hlíðum Ásfjalls sem er vinsælt og fjölskylduvænt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar. Ath: Nýtt hús á einni hæð með miklu útsýni !
Einstaka myndir hafa verið unnar með aðstoð gervigreindar.


Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 [email protected] 
og Einar Örn Ágústsson - löggiltur fasteignasali s. 888-7979 [email protected]  


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður
Hraunhamar fasteignasala

Hraunhamar fasteignasala

Bæjarhraun 10, 220 Hafnarfjörður