Tökum á móti gestum í bílakjallara Orkureitsins, hringið í Jason í s. 7751515 eða í Guðbjörg s. 8995533
Lýsing
Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.
Heimasíða Orkureitsins
Orkureitur - Grensásvegur 2, íbúð 705 er 4ra herbergja 130,1 fm með sérmerktu stæði B048. Íbúðin er á Grensásvegi 2, við Suðurlandsbraut og er á 7. hæðinni. Sérgeymsla 13,8 fm. Svalir til austurs með útsýni til fjalla. Horníbúðin í húsinu.
Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Rennihurð úr baðherbergi í þvottarými.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataskápum sem eru 3 metrar að breidd.
Svefnherbergi II er 8,6 fm að innra máli og er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Innréttingaþema er Safír Premium. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Alrýmið er með gluggum að mestu til norðurs og frábæru útsýni, að auki eru gluggar til austurs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru rúmlega 7 fm að stærð. Auðveldlega er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið á kostnað sjónvarpshols sem er í enda stofu. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Afhending íbúðanna: Afhending verður í júní/júlí
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir
Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: [email protected]
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: [email protected]
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.