Tökum á móti gestum í bílakjallara, hringið í Jason í síma 7751515 eða í Guðbjörgu í síma 8995533
Lýsing
Heimasíða Orkureitsins
Orkureitur - Grensásvegur 2, íbúð 707 er 3ja herbergja 152,9 fm með sérmerktu stæði B033. Íbúðin er nálægt horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og er á 7. hæðinni með fallegu útsýni.
Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu.
Sérþvottahús íbúðar er rúmgott með góðri innréttingu.
Hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi með baðkari.
Herbergi II er með fataskáp og snýr til austurs.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Premium.
Alrými tegir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum til vesturs og austurs og fallegu útsýni. úr alrými er gengið út á 18 fm Þaksvalir til vesturs þar sem til staðar er heitur pottur.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Sérgeymsla er 19,9 fm. að stærð.
Innréttingaþema er Safír Premíum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: [email protected]
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur [email protected].
Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 866-1763 - tölvupóstur: [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.