Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og rúmgott 207,4 m2 einbýlishús á einni hæð og með bílskúr á 840,3 m2 eignarlóð við Asparlund 5 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 207,4 m2, þar af íbúð 182,2 m2 og bílskúr 25,2 m2. Búið er að útbúa 2 stúdíó íbúðir í eigninni með sérinngangi. Annars vegar í bílskúr og svo í hjónasvítu. Auðvelt er að breyta til baka í upphaflegt skipulag. Aðalíbúð skiptist í dag í 3 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, gang, forstofu, geymslu og geymsluloft. Stúdíóíbúð nr. 1 skiptist í alrými, fataherbergi og baðherbergi. Stúdíóíbúð nr. 2 skiptist í forstofu, baðherbergi og alrými. Stór bakgarður í suðurátt með timburverönd. Frábær staðsetning rétt við Varmá með fallegum gönguleiðum og stígum upp á næstu fjöll.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð og með parketi á gólfi.
Borðstofa er björt og með parketi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í suðurátt.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er helluborð, ofn og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir stórum ísskáp. Gott skápapláss og flísar á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi og fataskáp. Af gangi er aðgengi að rúmgóðu geymslulofti með góðri lofthæð.
Svefnherbergi nr. 1-3 eru með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, vegghengdu salerni, skolvask og baðkari með sturtu.
Gestasnyrting er með salerni, skolvask og flísum á gólfi.
Þvottahús er með innréttingu og góðu flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af þvottahúsi. Úr geymslu er gengið út á bílaplan.
Stúdíóíbúð nr. 1 (Hjónasvíta) skiptist upp í alrými, baðherbergi og fataherbergi. Sérinngangur er í íbúðina. Í herbergi er parket á gólfi og fataskáp. Inn af herbergi er fataherbergi en þar er tengi fyrir þvottavél. Baðherbergi er með flísum á gólfi, handklæðaofni, vegghengdu salerni, innréttingu með skolvaski og sturtu. Rýmið er í útleigu í dag. Upphaflega er rýmið hjónaherbergi en er búið að loka fyrir inni hurð. Auðvelt væri að breyta til baka.
Stúdíóíbúð nr. 2 (Bílskúr) skiptist í forstofu, baðherbergi og alrými með vask og lítilli innréttingu.
Verð kr. 149.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.