Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
einbýlishús

Reykjabyggð 14

270 Mosfellsbær

148.000.000 kr.

726.916 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2084221

Fasteignamat

133.400.000 kr.

Brunabótamat

99.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1979
svg
203,6 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Laus strax

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulagt einbýlishús á einni hæð (með pöllum) á gróinni lóð móti suðri innst í botnlanga í Reykjahverfinu. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Góð aðkoma er að húsinu. Stór tvöfaldur bílskúr. 

*** Sækja söluyfirlit ***

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefa Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected] og Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 895-1427, [email protected] 

Um er að ræða nánar tiltekið Reykjabyggð 14, 270 Mosfellsbæ, F2084221. 6-7 herbergja einbýlishús á einni hæð með stórum tvöföldum bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 203,6 fm, þar af er íbúðarrými 145,7 fm, bílskúr er skráður 57,9 fm. Íbúðarrými hússins skiptist í anddyri, snyrtingu, húsbónda/forstofuherbergi, skála, eldhús, borðstofu og stofu með arni. Á herbergjagangi eru nú þrjú svefnherbergi (áður fjögur) og baðherbergi. Sérþvottahús er inn af eldhúsi með útgengi út í garð. Bílskúr er tvöfaldur, rúmgóður með tveimur innkeyrsluhurðum, gönguhurð og mörgum gluggum. Geymsla með gluggum er fyrir aftan bílskúrinn. Fasteignamat 2026 = 133.400.000 kr. 

Anddyri er með fatahengi. Flísar á gólfi. 
Snyrting er inn af anddyri. Salerni, handlaug. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi. 
Eldhús er lokað og rúmgott með stórri hvítri innréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi. Korkur á gólfi. 
Borðstofa er með tengingu við eldhús og stofu. Stór gluggi er í borðstofunni og hátt er til lofts. 
Stofa með arni er björt og með stórum gluggum. Mikil lofthæð, gengið er niður þvö þrep í stofuna. Parket á gólfi, flísar við arininn. 
Skáli er í hjarta hússins og tengir saman rými hússins. 
Herbergjagangur, parket á gólfi - útgengt er út í garð af enda gangsins. 
Herbergi 1 er stórt (13,4 fm) með tveimur gluggum, var áðru tvö minni herbergi og hæglega væri hægt að skipta því aftur upp í tvö minni. Parket á gólfi. Fataskápur.
Baðherbergi er rúmgott (6,9 fm) með stórum sturtuklefa og baðkari, upprunaleg innrétting, handlaug, salerni. Flísar í hólf og gólf. Stór gluggi með opnanlegu fagi. Ofn.  
Herbergi 2 er hjónaherbergi er rúmgott hornherbergi (13,1 fm) með glugga í tvær áttir og góða fataskápa. Parket á gólfi. 
Herbergi 3 er gott (8 fm), ekki með skápum. Parket á gólfi. 
Herbergi 4 er húsbóndaherbergi / forstofuherbergi með góðum fataskápum. Parket á gólfi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi. Málað gólf. Útgengt er úr þvottahúsi út í garð, góð tenging við geymslu og bílskúr. 
Geymsla með gluggum er fyrir aftan bílskúr. Mögulegt að útbúa aukaherbergi þar.  
Bílskúr er stór (57,9 fm), tvöfaldur með mörgum gluggum. Tvær innkeyrsluhurðir og tvær inngönguhurðir. Heitt og kalt vatn. Góð hellulögð innkeyrsla er fyrir framan bílskúrinn sem rúmar vel 2-3 bíla. 

Lóðin er stór (759 fm) og gróin með tveimur veröndum með skjólveggjum, góðri grasflöt og nokkrum háum trjám. Góð staðsetning innst í botnlanga. Kyrrlátt og rólegt umhverfi. 

Þak var endurnýjað 2014, nýr pappi, þakjárn og þakkantur. 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík