Opið hús: Seilugrandi 3, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 09 03 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 23. apríl 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Íbúðin er skráð 51,8 fm skv. HMS en auk þess fylgir henni ca 4 fm geymsla í kjallara sem ekki er inni í skráðum fermetrum. Heildarfjöldi fermetra er því um 55,8.
Eignin er laus til afhendingar.
Nánari lýsing:
Forstofa: parketlögð með fataskáp.
Svefnherbergi: Rúmgott, parketlagt og góðir fataskápar.
Baðherbergi: flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, nýleg innrétting og vaskur. Tengt er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Eldhús: opið í stofu eldri uppgerð innrétting, nýleg borðplata, vaskur og tæki. Parket er á gólfi.
Stofa/borðstofa: rúmgóð, björt og parketlögð. Útgengt á svalir.
Geymsla: í sameign í kjallara með ágætu hilluplássi.
Þvottahús: í sameign í kjallara.
Bílskýli: Stæði í bílageymslu fylgir.
Sameign: Sameignin er snyrtileg.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson í síma 8939929, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.