Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
160,7 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Háborg og Þórunn Pálsdóttir lgf kynna með stolti sérlega rúmgóða og glæsilega 5 herbergja útsýnisíbúð í Akrahverfinu í Garðabæ.  Íbúðin er 151,9 fm og geymsla er 8,8 fm, samtals 160,7 fm.
Sérinngangur, fjögur góð svefnherbergi, tvö baðherbergi, stór falleg stofa og góðar suðursvalir.  Glæsilegt útsýni yfir Garðabæinn, að Snæfellsjökli og víðar.  Björt endaíbúð með gluggum á þrjá vegu.
Fallegt álklætt hús frá árinu 2007, snilldarlega hannað af Ingimundi Sveinssyni.  Frábær staðsetning  stutt frá verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]



Skipulagið er frábært, en komið er í forstofu með flísum á gólfi og skápum sem ná upp í loft. Gluggi til norðurs.
Næst er stórt alrými samanstendur af stofu og  rúmgóðu eldhúsi inn af.  Útgengi á 8,7 fm svalir til suðurs.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og fallegri eikar eldhúsinnréttingu og með granít í borðplötum.. Glæsilegt útsýni til vesturs og suðurs
Stofan er  stór með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Glæsilegt útsýni til suðurs, m.a. að Keili.
Á vinstri hönd þegar komið er úr forstofu er rúmgott 9,9 fm herbergi með skápum og glugga til norðurs.  Við hliðina á því er flísalagt þvottahús með vinnuborði og tengi þvottavél og þurrkara.  Næst er rúmgott baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu og baðkeri. Innst er 15,2 fm mjög rúmgott hjónaherbergi með skápum að lofti og glugga til suðurs.
Á hægri hönd þegar komið er úr anddyrinu er þriðja svefnherbergið sem er 10 fm með skápum og glugga til norðurs og  þar við hliðina fjórða svefnherbergið, örlítið stærra eða 10,4 fm einnig með skáp og glugga til norðurs.
Við hliðina á því er baðherbergi tvö með sturtu og opnanlegum glugga.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð hússins. 
Sér geymsla íbúðarinnar er 8,8 fm og staðsett á jarðhæð hússins.

Frábærlega skipulögð og rúmgóð fimm herbergja íbúð  þessu vinsæla hverfi í Garðabæ. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar: Þórunn Pálsdóttir  lögg. fasteignasali og verkfræðingur / [email protected] / 773-6000

Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. maí. 2016
104.250.000 kr.
57.000.000 kr.
10206 m²
5.585 kr.
10. jan. 2013
35.200.000 kr.
39.500.000 kr.
160.7 m²
245.800 kr.
28. jún. 2010
36.600.000 kr.
34.000.000 kr.
160.7 m²
211.574 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone