Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1979
139,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Opið hús: 27. apríl 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Hlíðarás 1b, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 27. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, s. 8998815, [email protected]
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög rúmgóð 4ra herbergja íbúð á útsýnisstað í Ásahverfinu í Mosfellsbænum.Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, [email protected]
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 101 við Hlíðarás 1, 270 Mosfellsbæ, F2083738. 4ra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 139,8 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, stórt baðherbergi og sér þvottahús.
*** Sækja söluyfirlit ***
Nánari lýsing eignar:
Anddyri með fataskápum, parket á gólfi.
Eldhús er í sér rými með stórri hvítri innréttingu og góðu vinnuplássi. Parket á gólfi.
Stofa er í sér rými, parket á gólfi. Rýmið er bjart og opið með stórum gluggum. Útsýni á Leirvoginn og til fjalla. Útgengt er út í garð milli stofu og eldhúss.
Svefnherbergi 1 er stórt (19 fm), parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er rúmgott (10 fm), parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er 8,9 fm, parket á gólfi.
Baðherbergi er mjög stórt með hvítri innréttingu og miklu skápaplássi, stóru baðkari og sturtuklefa. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og vegg við baðkar.
Þvottahús er ekki með innréttingu, málað gólf, opnanlegur gluggi.
Fyrir liggur samþykki húsfundar dags. 29.5.2025 fyrir því að fara skuli í þakskipti og þar á eftir eða samhliða í tréverk. Múrverk og verja húsið þar á eftir. Þakið verði gert sem allra fyrst.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. sep. 2016
31.750.000 kr.
37.000.000 kr.
139.8 m²
264.664 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026