Upplýsingar
Byggt 1970
171,2 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Svarfaðarbraut 8 - Dalvík
Um er að ræða fjögurra herbergja einbýlishús ásamt bílskúr á góðum stað á Dalvík. Eignin er samtals 171,2 fm., þar af er bílskúr 50 fm. með geymslu innst meðtalinni.
**Getur verið laus við kaupsamning**
Komið er inn í flísalagða forstofu þar sem teiknaður er stigi niður í bílskúr. Hann er hinsvegar ekki til staðar og er lokað milli íbúðarhluta og bílskúrs.
Úr forstofu er gengið inn á hol sem er með parket á gólfi. Strax á vinstri hönd er rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parket á gólfi.
Eldhús er innangengt úr bæði stofu og af holi. Þar er borðkrók og upprunaleg U-innrétting.
Á efri palli eru þrjú svefnherbergi en búið er að sameina tvö af þeim, hægt að breyta til baka. Úr hjónaherbergi er útgengt út á svalir.
Baðherbergi með glugga og opnanlegu fagi, þar er innrétting í kringum vask, baðkar og sturtuklefi.
Þvottahús og geymsla er inn af eldhúsi og þar er einnig bakdyrainngangur.
Gengið er í bílskúr af plani, hann er mjög rúmgóður með geymslu inn í enda en búið er að taka millivegg þar sem er á teikningum. Gluggar eru á norðurhlið bílskúrs en þar má finna rakamerki á útvegg.
Ræktuð falleg lóð er umhverfis húsið.
Farið var í skólplagnir út í götu fyrir ekki löngu síðan, húsið málað á svipuðum tíma og almennt er ástand hússins talið gott ef undan er skilið gler í gluggum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955