Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 1

102 Reykjavík

65.925.000 kr.

812.885 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532643

Fasteignamat

36.650.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
81,1 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Svalir

Lýsing

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 1 – Íbúð 305.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 87.900.000 kr.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending er hafin.

S8-Sameign í boði:

  • Þú fjármagnar 75% — 65.925.000 kr. (lágmark 75%)
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (6.592.500 kr.)
  • Nýtir þú kauprétt innan 3 ára færðu leigugreiðslur endurgreiddar
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Sendu fyrirspurn á [email protected] eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.

Á Sölusíða eignarinnar færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

2ja herbergja horníbúð með óhindruðu útsýni á 3. hæð í vesturenda Hlíðarhorns, 81,1 fm (þar af 5,1 fm geymsla í kjallara). Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á yfirbyggðar vestursvalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mói 2.

Í anddyri er fataskápur. Rúmgott alrými með eldhúsi með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á yfirbyggðar vestursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa, ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Hjónaherbergi með skápum. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri og innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur. Blöndunartæki úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla í kjallara (0009). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 87.900.000 kr.

ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone
Heima Fasteignasala

Heima Fasteignasala

phone