Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2008
156,8 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 29. apríl 2026
kl. 17:30
til 18:00
***OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 29. APRÍL FRÁ 17:30 - 18:00***
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð við Löngulínu 2 í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Eignin er alls 156,8 fm að stærð og skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, tvö baðherbergi, sér þvottahús innan eignar og geymslu í kjallara. Eignin er með suður verönd og stórum svölum ásamt tveimur bílastæðum í bílageymslu. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: [email protected]
Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi. Hjónaherbergið er með fallegum innbyggðum fataskáp og útgengi út á góða verönd sem snýr til suðurs. Einnig er hægt að ganga út á sömu verönd úr öðru samliggjandi svefnherbergi sem er með hvítum háglans fataskáp með rennihurðum. Þriðja svefnherbergið er mjög rúmgott en það er einnig með hvítum háglans fataskáp með rennihurðum. Eldhúsið er opið með vandaðri eikarinnréttingu í bland við hvíta efri skápa. Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi út á stórar svalir. Aðal baðherbergið er flísalagt ljósum flísum í hólf og gólf, með fallegri eikarinnréttingu, handklæðaofni, baðkari og sturtu. Gestasnyrting er síðan með hvítri innréttingu. Sér þvottaherbergi er innan eignar með borðplötu og skolvaski. Innfelld lýsing er í eigninni að hluta. Gólf eru lögð með eikarparket í öllum rýmum nema votrýmum en þar eru flísar. Gólf eru staðsteypt með hita og hljóðdempandi mottum til að tryggja góða hljóðeinangrun á milli hæða. Eignin er alls 156,8 fm að stærð en þar af er 11,8 fm geymsla í sameiginlegum kjallara. Einnig fylgir eigninni tvö merkt bílastæði í bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. júl. 2021
71.300.000 kr.
85.000.000 kr.
156.8 m²
542.092 kr.
5. okt. 2012
36.700.000 kr.
36.500.000 kr.
156.8 m²
232.781 kr.
29. des. 2010
16.400.000 kr.
31.987.000 kr.
156.8 m²
203.999 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026