Opið hús: Eyjabakki 6, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 02 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 2.maí 2026 milli klukkan 14:00 og 14:30
Lýsing
Eignin Eyjabakki 6 er skráð sem 3-4ja herbergja íbúð. Birt stærð 110.2 fm.
Eignin er staðsett í enda sem snýr í suð-vestur á 2.hæð með 24,8 fm bílskúr og 7,1 fm geymslu.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, lgf, í síma 8200788, tölvupóstur [email protected].
Bjarklind Þór, lgf, í síma 6905123,tölvupóstur [email protected].
Rúmgóð endurýjuð íbúð í Breiðholti
Hjónaherbergi með nýlegum tvöföldum skáp.
Búið er að gera barnaherbergin tvö að einu stóru en auðvelt að breyta aftur.
Eldhús/stofa í opnu björtu rými. Nýleg innrétting í eldhúsi með innfeldum vask, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél,veggháf og kvartstein á borðum.
Svalir snúa í suð-vestur. Fallegt útsýni yfir Elliðaárdalinn og í átt að Esju.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar og með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: í kjallara
Bílskúr: Góður endabílskúr með opnalegum glugga á hliðinni, upphitaður með köldu vatni. Fyrir framan bílskúrinn er bílastæði.
Sameiginleg vagna-og hjólageymsla er staðsett í sameign í kjallara hússins.
- Árið 2023 var skipt um gler og gluggalista eftir þörfum í húsinu og tréverk málað. Ný gler í stofugluggum norður.
- Árið 2022 brotinn niður veggur í eldhúsi og ný eldhúsinnrétting og tæki sett upp. Parket sett á alrými og opinn fataskápur á forstofugagni. Dregið nýtt rafmagn í alrými, eldhús og svalir skipt um tengla og rofa í öllum herbergjum.
- Árið 2019 var skipt um fataskáp og gólfefni í svegnherbergjunum.
- Árið 2015-2016 var skipt um alla ofna í íbúðinni fyrir utan einn inná baðherberginu.
- Árið 2014-2015 var þak yfirfarið og skipt um þakrennur. Skipt um gler í minna herbergi.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.