Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1974
87,5 m²
4 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. maí 2026
kl. 16:00
til 16:30
Opið hús: Furugrund 46, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd sunnudaginn 3. maí 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og töluvert endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með aukaherbergi með aðgangi að salerni í kjallara, auk ca. 6 fm geymslu (sem ekki er skráð í fermetratöluna) á fjölskylduvænum og vinsælum stað Fossvogsmegin í Kópavogi. Merkt bílastæði fyrir utan húsið. Íbúðin skiptist í 3ja herbergja íbúð, skráð 75,4 fm., auk 12,1 fm. herbergi á sameiginlegum gangi með sameiginlegum aðgangi að salerni í kjallara. Þá fylgir íbúðinni óskráð geymsla, ca. 6 fm, samtals, 93,5 fm. Íbúðin er öll nýlega máluð, búið er að endurnýja alla ofna og nýlega sett ný gólfefni á svefnherbergi og eldhús. Þá hefur eldhúsið verið endurnýjað og/eða lagað að mestu.. Allt húsið málað að utan 2018. Sameiginlegur garður með stórri suður grasflöt bak við húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá [email protected]
Nánari lýsing: Húsið er þriggja hæða fjölbýli byggt 1974 á afar vinsælum og fjölskylduvænum stað Fossvogsmegin í Kópavogi. Göngufæri er í skóla og leikskóla og örstutt í margþætta þjónustu í miðbænum við Hamraborgina og við Nýbýlaveginn. Íbúðin er endaíbúð á fyrstu hæð og er komið inn í forstofugang og er eldhús strax á hægri hönd, þá hjónaherbergi og svo barnaherbergi. Við enda gangsins er baðherbergið og síðan í endanum vinstra megin er stofan með glugga á tvo vegu. Þá er rúmgott aukaherbergi í kjallara með aðgangi að sameiginlegu salerni sem auðveldlega væri hægt að leigja út.
Forstofugangur: Með fatahengi. Flísar við inngang en síðar parket.
Eldhús: Með hvítri innréttingu að hluta til með nýjum skápaeiningum eða sprautulökkuðum skáphurðum. Nýleg borðplata, vaskur og blöndunartæki og gólfefni endurnnýjað.
Stofa: Rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu. Gólfefni er upprunalegt gegnheilt parket sem hefur verið slípað og massað.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fjórföldum fataskáp. Nýlegt harðparket á gólfi.
Barnaherbergi: Gólfefni er upprunalegt gegnheilt parket sem hefur verið slípað og massað.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með baðkari og upphengdri sturtu og innréttingu við vask. Nýleg blöndunartæki og vaskur.
Aukaherbergi í kjallara: 12,1 fm með aðgangi að sameiginlegu salerni á kjallaragangi. Nýleg gólfefni.
Sérgeymsla: Um 6 fm, ekki skráð í fermetratölu, staðsett í sameign í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi þar sem hver er með sýna vél en sameiginlegur þurrkari er í þvottahúsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Viðhald: Íbúðin öll máluð að innan 2024. Allir ofnar endurnýjaðir ársbyrjun 2025. Skipt um ofna og ofnkrana í sameign við útidyr í febrúar 2025. Skipt um gólfefni í hjónaherbergi, herbergi niðri og eldhúsi í nóvember 2024. Parket í stofu og barnaherbergi slípað og fest þar sem holt var undir í maí 2022 og aftur massað vorið 2023. Skiput um borðplötu, vask, blöndunartæki í eldhúsi og nýjar skápareiningar í kringum ísskáp 2024. Framhliðar á eldhússkápum sprautulakkaðar í byrjun árs 2026. Skipt um vask og blöndunartæki á baði í nóvember 2025. Lögð ný deiligrein í eldhús með auka öryggisboxi inn í vaskaskáp fyrir uppþvottavél og bakaraofn 2024. Skipt um innstungur 2024 í eldhúsi og svefnherbergi og þar sem þurfti. 2018 var skipt um opnanlegt fag og gler á baðherbergi, gler í svalahurð endurnýjað og opnalega fagið í stofunni yfirfarið og lagfært. Þak viðgert eftir leka meðfram loftneti 2023/4. 2021 var spólað niður rið á þaki og grunnað yfir með tveggja þátta expoxy grunn og allt þakið ryðvarnargrunnað. 2018 var húsið allt málað að utan.
Falleg og mikið endurnýjuð 3-4 herbergja íbúð á afar vinsælum stað í Kópavogi. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. mar. 2017
26.700.000 kr.
34.800.000 kr.
87.5 m²
397.714 kr.
5. jún. 2010
17.200.000 kr.
18.000.000 kr.
87.5 m²
205.714 kr.
25. sep. 2009
18.850.000 kr.
21.800.000 kr.
87.5 m²
249.143 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026