Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Kristnibraut 10

113 Reykjavík

79.900.000 kr.

748.127 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2253197

Fasteignamat

78.250.000 kr.

Brunabótamat

52.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2001
svg
106,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða [email protected]**

Vel skipulögð þriggja herbergja 106,8m² íbúð á annari hæð með glæsilegu útsýni yfir borgina og til fjalla. Um er að ræða eign með einstöku útsýni og mikla nánd við náttúruna. Í göngufæri eru leik- og grunnskóli sem og náttúruperlur eins og Úlfarsfell og Reynisvatn. Golfvöllur GR við Grafarholtið einnig í göngufæri og örstutt er í flesta þjónustu. Aðeins þrjár íbúðir í stigahúsinu, sameign er snyrtileg og teppalögð. 

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 106,8m², þar af er geymsla skráð 7m².
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er á jarðhæð

Nánari lýsing:
Anddyri er flísalagt, góðir fataskápar.
Eldhús er með flísum á gólfi, eikar innrétting með eyju. Í innréttingu er tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, vifta, ofn og vaskur. Gluggi er á eldhúsi.
Borðstofa er í framhaldi af eldhúsi, parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð, frá stofu er gengið út á rúmgóðar suðvestur svalir með glæsilegu útsýni yfir borgina.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Aukaherbergi er með parketi á gólfi og glugga með fallegu útsýni.
Baðherbergi með nettri innréttingu undir handlaug og speglaskáp fyrir ofan, baðkari og sturtu. 
Þvottahús er innan íbúðar. Tengi fyrir þvottavél, þurrkara og skolvaskur.

Sameign: Sérgeymsla með glugga er i sameign þar er einnig hjóla-og vagnageymslu. Sameiginleg bílastæði eru á lóð fyrir framan hús, búið er að koma fyrir hleðslustaurum fyrir rafmagnsbíla.

Framkvæmdir sl. ára skv. seljanda: 
- Húsið var sprunguviðgert & málað 2023 
- Svalir viðgerðar 2023 
- Gluggar yfirfarnir og skipt um þá sem þurfti, einnig gler og lista þar sem þurfti. 2023 
- Þakviðgerðir 2021 ca. 

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík