Lýsing
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla í sameign í kjallara. Sérmerkt bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl í bílageymslu. Svalir með rennihurð í suðurátt. Fallegar innréttingar og gott skipulag. Glæsilegt útsýni er frá íbúðinni. Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi, stutt í þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla, íþróttastarf og fleira.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa: er með hengi og flísum á gólfi. Forstofan er ekki inni í fermetrastærð íbúðarinnar hjá fasteignaskrá HMS en hún er tæpir 6 m2.
Stofa/borðstofa: er í opnu björtu rými með eldhúsi. Parket á gólfi. Gengið er út á svalir í suðurátt.
Eldhús: er með fallegri innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr.1: (hjónaherbergi) er bjart með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr.2: er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með sturtu, handlaug, innréttingu, handklæðaofn og vegghengdu salerni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar á gólfum og veggjum. Gluggi er á baðherbergi.
Sérgeymsla: er í kjallar með glugga.
Bílastæði: í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni og er búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður