Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1977
64,4 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Laus strax
Opið hús: 3. maí 2026
kl. 13:00
til 13:30
Opið hús: Fífumói 1, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 03 02 03. Eignin verður sýnd sunnudaginn 3. maí 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg og björt 2ja herbergja endíbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi við Fífumóa 1D, 260 Reykjanesbæ. Birt flatarmál eignarinnar 64,4 fm auk þess er geymsla í sameign ca. 5 fm sem fylgir eigninni en er ekki skráð í birta fermetrastærð. Húsið var múrviðgert að utan árið 2020 og málað árið 2021, parket á alrými var endurnýjað árið 2020 og einnig hafa gluggar, gler og svalahurð verið endurnýjuð í stofu. Eldhúsið var endurnýjað 2024 með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni á lóð. Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected]
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Á hægri hönd við inngang er mjög rúmgott svefnherbergi með fataskápum. Flísalagt baðherbergi með snyrtilegri innréttingu, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og gluggi. Eldhúsið er nýlega endurnýjað, með flísum á gólfum, flísar á milli efri og neðri skápa, gluggi. Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á svalir. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign og er hún með glugga einnig fylgir eigninni aðgangur að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Snyrtileg og vel skipulögð endaíbúð á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. jún. 2024
31.300.000 kr.
35.500.000 kr.
30203 m²
1.175 kr.
21. des. 2021
19.400.000 kr.
25.100.000 kr.
64.4 m²
389.752 kr.
28. sep. 2018
13.000.000 kr.
21.500.000 kr.
64.4 m²
333.851 kr.
21. feb. 2017
10.450.000 kr.
16.000.000 kr.
64.4 m²
248.447 kr.
18. sep. 2015
9.420.000 kr.
9.500.000 kr.
64.4 m²
147.516 kr.
1. feb. 2011
9.330.000 kr.
10.780.000 kr.
64.4 m²
167.391 kr.
11. feb. 2008
8.243.000 kr.
10.500.000 kr.
64.4 m²
163.043 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026