Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
fjölbýlishús

Álfaheiði 22

200 Kópavogur

60.900.000 kr.

850.559 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2057786

Fasteignamat

54.550.000 kr.

Brunabótamat

39.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
71,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. maí 2026 kl. 14:00 til 14:45

Opið hús: Álfaheiði 22, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 3. maí 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:45. Bóka má skoðun hjá Sölva í s. 618-004 eða á [email protected]

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynnir í sölu: Bjarta, vel skipulagða tveggja herbergja 71,6 m²  íbúð á 1. hæð (íbúð 104) í litlu fjölbýli við Álfaheiði 22, í 200 kópavogi. Eingöngu eru tvær íbúðir í stigahúsinu sem deila sama inngangi og er engin íbúð fyrir ofan íbúðina. STÓR AFGIRT VERÖND OG GOTT ÚTSÝNI ER ÚR STOFU OG AF VERÖND.
 
  • Nýlegir gluggar frá 2022 í stofu og herbergi
  • Nýlegt harðparket frá 2022
  • Góð staðsetning í litlu fjölbýli
  • Stór verönd og mikið útsýni

Íbúðin skiptist í opið anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi og rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Á jarðhæð í sameign er 7,8 m² sérgeymsla sem ekki er inn í fermetratölu eignarinnar.  Sameiginleg vagna- og hjólageymslu í sameign með hurð út á lóð. 
Eignin er í heild skráð   63,8 m² skv. Hms, þar að auki er 7,8 m² geymsla sem ekki er skráð.
Fasteignamat ársins 2026 er 54.550.000 kr.


EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA

Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða [email protected] 

Nánari lýsing
Komið er inn í andddyri og stofu sem eru í opnu sameiginlegu rými. Harðparket er á anddyri og stofurými.
Eldhús er með hvítri innréttingu, efri og neðri skápar, nýlegum bakarofni ásamt span helluborði, góður borðkrókur í eldhúsi.
Stofan er björt með gluggum í suður og fallegu útsýni og er hurð út á rúmgóða afgirta sérverönd.
Svefnherbergi er með rúmgóðum fataskáp og harðparketi á gólfi. Útgengt er út á stóran sérafnotaflöt fyrir framan stofu og herbergið sem er afgirt með skjólvegg.
Baðherbergi er rúmgott og eru veggir flísalögð ljósum flísum, gólf er einnig með flísum. Rúmgott sturturými afmarkað með glersteini. Hvít innrétting og speglaskápur ofan við handlaug. Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi á baðherbergi.
Sérgeymsla eignarinnar ásamt vagna- og hjólageymslu eru á jarðhæð.
Snyrtileg sameign þar sem sérinngangur fyrir tvær eignir.

Upplýsingar frá eiganda með framkvæmdir síðustu ára:
- 2022 var skipt var um glugga í stofunni og svefnherberginu og gert við svalarhurð í svefnherberginu.
- 2022 Skipt um gólfefni og sett harðparket á öll rými að undanskildu baðherbergi þar eru flísar.

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign í suðurhlíðum Kópavogs með miklu útsýni.  Stutt í alla þjónustu, sundlaug, grunn- og, leikskóla, íþróttir, heilsugæslu og verslanir.

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða [email protected] 
 – eða skrifstofa / s.588-4477 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. júl. 2021
32.350.000 kr.
43.000.000 kr.
63.8 m²
673.981 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone