Opið hús: Efstihjalli 7, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd föstudaginn 3. apríl 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30. Þórhallur sími 8968232
Lýsing
Lýsing:
Gengið er inn í rúmgott flísalagt anddyri/hol sem tengir saman eignina. Á vinstri hönd er eldhús og stofa og hægra megin svefnherbergi og baðherbergi. Útsýni til Esju.
Stofa er rúmgóð með nýpússuðu parket á gólfi og útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.
Eldhús er með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Við enda þess er borðkrókur. Pláss fyrir uppþvottavél eða þvottavél.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með eldri flísum. Baðkar. Þvottaaðstaða er inná baðherbergi og einnig í kjallara.
Hjónaherbergi 1 er með rúmgóðum fataskápum. Parketdúkur á gólfum herbergja.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp.
Svefnherbergi 3 er minnsta herbergið á milli hinna tveggja.
Geymsla er í kjallara sem er skráð 6,8 fm.
Í kjallara er einnig þvottahús, hjólageymsla og vagnageymsla.
Staðsetning eignarinnar er góð og stutt er í skóla, verslanir og þjónustu.
Sunnan megin við húsið er sameiginlegur garður og fjöldi bílastæða fyrir framan hús.
Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 löggiltur fasteignasali, [email protected] og
Guðbjörg Guðmundsdóttir s.899 5533 löggiltur fasteignasali, [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.