Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Grandavegur 42

107 Reykjavík

200.000.000 kr.

1.326.260 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2352934

Fasteignamat

124.050.000 kr.

Brunabótamat

93.120.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
150,8 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir til sölu: Stórglæsileg íbúð á Grandavegi 42b, 6. hæð Vel skipulögð íbúð á efstu hæð. Rúmgott alrými, hjónasvíta, tvö baðherbergi og yfirbyggðar svalir. Einstakt sjávarútsýni — Snæfellsjökull, Akrafjall, Skarðsheiði, Esjan og sundin blá.

Íbúðinni fylgir stæði í lokuðu bílastæðahúsi þar sem er rafhleðslustöð. Einstök eign í þessu vinsæla húsi.

Bókið einkaskoðun:
[email protected]

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 150,8 m², þar af er flatarmál íbúðar 134,6 m² og flatarmál geymslu 16,2 m².
Yfirbyggðar og lokaðar svalir eru utan skráningar og eru 22,1 m².


Eignin skiptist í forstofu, alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, lokaðar svalir, tvö baðherbergi, barnaherbergi og hjónasvítu með fataherbergi og sér baðherbergi,
þvottaherbergi og geymslu. Auk þess fylgir bílastæði í bílakjallara.

Nánari lýsing:
Það fyrsta sem vekur athygli þegar gengið er inn í íbúðina er einstakt sjávarútsýni — Snæfellsjökull, Akrafjall, Skarðsheiði, Esjan og sundin blá 
Eignin er björt og vel skipulögð, með fallegum innréttingum og góðu flæði milli rýma. Ljóst viðarparket frá Ebson er á allri íbúðinni og gefur henni hlýlegt og samræmt yfirbragð.
Forstofa er með flísum, góðu fatahengi og skáp.
Eldhús er með fallegri viðarinnréttingu, bæði efri og neðri skápum, og eyju sem skilur að eldhús og stofu.
Eldhústæki eru vönduð og innbyggð, þar á meðal bakaraofn og combi-ofn í vinnuhæð, uppþvottavél og ísskápur.
Span helluborð, háfur og borðplata úr kvartsteini gefa rýminu glæsilegt yfirbragð.
Alrými eldhúss, stofu og borðstofu er sérstaklega fallegt og bjart, með stórum gluggum og útgengi á yfirbyggðar svalir sem snúa til vesturs með einstöku útsýni.
Á svölum er fallegt plankaparket sem eykur á hlýleika og notagildi rýmisins.
Hjónasvíta er rúmgóð með sér baðherbergi og fataherbergi.
Falleg bambus-veggklæðning setur hlýlegan og náttúrulegan svip á rýmið.
Innréttingar eru vandaðar og bjóða upp á mikið skápa- og skúffupláss.
Á baðherbergi eru tveir vaskar, vegghengt salerni, sturta, handklæðaofn og flísar á gólfi og veggjum.
Aukaherbergi með sjávarútsýni er rúmgott og með fataskáp.
Annað baðherbergi er með innréttingu undir handlaug, sturtu, vegghengdu salerni, glugga og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi/búr er inn af eldhúsi og lokað með rennihurð.
Rúmgóð sérgeymsla er í jarðhæð sameignar.

Sérstaklega vel staðsett bílastæði, alveg við inngang, í lokuðu bílastæðahúsi fylgir eigninni. Þar er einnig rafhleðslustöð.
Hjólageymsla og vagnageymsla eru í sameign í jarðhæð.

 
Einstök eign í Vesturbæ Reykjavíkur…
 
Nánari upplýsingar:
Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
s. 844 6447 – [email protected]

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali á Borg fasteignasölu.
s. 868 2222 - [email protected]
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

img
Gunnlaugur Þráinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Gunnlaugur Þráinsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. apr. 2019
79.350.000 kr.
87.500.000 kr.
150.8 m²
580.239 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Gunnlaugur Þráinsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík