Opið hús: Tómasarhagi 17, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 25. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Þórhallur sími 8968232.
Lýsing
Hæðin 129,7 fm, rishæðin 74 (gólfflötur stærri). Samtals íbúðarrými 203,7 fm.
Bílskúr 53,9 fm. Auðvelt að gera úr honum íbúð.
Mjög barnvænt hverfi og stór leikvöllur sunnan við húsið.
Rúmgott anddyri á 1. hæð. Gengið upp stiga á hæðina. Einnig innangegnt í kjallara hússins.
Hæðin : Þrjú svefnherbergi, fatahol, hol (piano), góðar stofur (þaðan er útgegnt á suður svalir), nýstandsett flísalagt baðherbergi með sturtu, eldhús með góðri innréttingu, búrherbergi þar við hlið.
Frá stofu er góður stigi upp á rishæðina þar sem eru góðar stofur (útgengt á suður svalir), tvö góð svefnherbergi og flísalagt baðherbergi með sturtu.
Í kjallara er sameiginlegt rúmgott þvottahús og kyndiklefi.
Bílskúrinn býður upp á ýmsa möguleika. Þar er góð snyrting. Gólf flísalagt. Útgegnt bakatil á góðan pall. Góður möguleiki á auka íbúð í bílskúrnum. Bílastæði framan við bílskúr.
Fallegur og vel gróinn garður.
Viðhald og endurbætur :
- Tröppur að húsinu múrviðgerðar sumarið 2025. .
- Baðherbergi hæðarinnar var endurnýjað að fullu árið 2024.
- Ofnar og ofnalagnir endurnýjað árið 2020.
- Frárennslislagnir voru myndaðar og fóðraðar.
- Skipt um þakrennur árið 2012.
- Skipt um glugga árið 2000.
- Rishæðin var byggð árið 2000.
- Skipta þarf út svalahurð á rishæðinni og athuga sprungu á bílskúrsvegg.
Háskóli Íslands og stofnanir, Skólar, vesturbæjarlaug, melabúðin, kaffihús og góðar gönguleiðir við sjóinn og víðar. Hér er gott að ala upp börnin.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.