Opið hús: Veghús 31, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 08 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 11. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 114,2 fm. og þar af 13,0 fm stæði í bílakjallara.
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, baðherbergi, þvottahús, hjónaherbergi, þrjú svefnherbergi og geymslu við hliðina á við inngang inn í íbúðina.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri er rúmgott með innbyggðu fatahengi og parketi á gólfi.
Stofa björt með fallegu útsýni og með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni. Stofa og eldhús í einu samliggjandi og opnu rými.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, helluborð, gufugleypir, ofn, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu og parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með skolvask og flísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi III með nýlegu parketi á gólfi.
Svefnherbergi IIII með fataskáp og parket á gólfi. Í einhverjum íbúðum hefur það verið tekið niður og við það stækkað stofuna.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar í kringum baðkar og á gólfi.
Geymsla við hliðina á við inngang í íbúðina með hillum.
Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Þrifaðstaða fyrir bíla í bílageymslu og dekkjahótel.
Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Endurnýjanir:
2025: Nýjar lyftur, teppi endurnýjuð í sameign og hún máluð.
2016-2024:
- Nýr myndavéladyrasími.
- Lagt fyrir og settar upp tvær hleðstöðvar í sameign.
- Ný bílskúrshurð 2024.
Góð staðsetning í hinu gróna Húsahverfi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, golfvöll, kvikmyndahús, sundlaug, skíðabrekku, skautahöll, skemmtilegar gönguleiðir, verslun og ýmsa aðra þjónusta. Einnig er stutt út á helstu stofnbrautir.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.