Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Skessugil 9

603 Akureyri

63.900.000 kr.

689.320 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2254577

Fasteignamat

58.250.000 kr.

Brunabótamat

44.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2002
svg
92,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Tiktok:
https://www.tiktok.com/@fasteignasalaakureyrar/video/7637940427496246550?lang=en

Ath. Að hluti búslóðar getur fylgt, s.s þvottavél, þurrkari, ísskápur og frystiskápur auk annarra húsgagna eftir samkomulagi.  
Laus fljótlega – einstaklega snyrtileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fallegu fjórbýli þar sem engir stigar eru, eignin er þ.a.l. sérlega aðgengileg og þægileg í daglegu lífi.
Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu með góðum fataskápum úr spónlagðri eik og fallegum flísum á gólfi.
Inn af forstofu er þvottahús með hillum og sérgeymslu sem býður upp á gott skipulag og aukið geymslupláss.
Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með eikarparketi og rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergið er snyrtilegt með flísalögðum veggjum og gólfi, hvítri innréttingu, sturtuklefa og góðri aðstöðu.
Eldhúsið er bjart og vel útbúið með fallegri eikarinnréttingu, ljósum borðplötum, keramik helluborði og ofni í þægilegri vinnuhæð.
Úr eldhúsi er gengið út á snotra, steypta suðurverönd með skjólveggjum þar sem notalegt er að njóta sólar og útiveru.
Stofan er björt og notaleg með parketi á gólfi og góðu rými fyrir fjölskyldu og gesti.
Hér er um að ræða eign á einstaklega góðum stað með snyrtilegu umhverfi, sameiginlegri geymslu framan við húsið og örstutt í skóla og leikskóla.  Frábær kostur fyrir fjölskyldur, fyrstu kaupendur eða þá sem vilja þægilegt og aðgengilegt heimili.
 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasala Akureyrar ehf

Fasteignasala Akureyrar ehf

Skipagötu 1, 600 Akureyri
phone
Fasteignasala Akureyrar ehf

Fasteignasala Akureyrar ehf

Skipagötu 1, 600 Akureyri
phone