Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Snægil 19 íbúð 202

603 Akureyri

63.500.000 kr.

685.005 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2239039

Fasteignamat

56.900.000 kr.

Brunabótamat

52.473.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
92,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 19. maí 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Snægil 19 íbúð 202 - Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 92,7 m²

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. 
Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum á efri hæð og er fellistigi upp á það. 

Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum skáp. 
Eldhús, flísar á gólfi og spónlögð innrétting með hvít máluðum flísum á milli skápa. Ísskápur er innfelldur í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Borðkrókur með hornglugga. 
Stofa er með dökku parketi á gólfi og gluggum til þriggja átta. Úr stofu er hurð út á steyptar vestur svalir, skráðar 6,0 m² að stærð. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dökku parketi á gólfi og spónlögðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,0 og 13,0 m²
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og glervæng og opnanlegum glugga. 
Þvottahús er á milli forstofu og geymslu, þar eru flísar á gólfi, bekkur með skolvaska og hillur. 
Geymsla er inn af þvottahúsinu með dökku parketi á gólfi og opnanlegum glugga. Geymslan er skráð skv. teikningum 6,0 m² að stærð og getur nýst sem þriðja svefnherbergið. 

Annað
- Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum efrihæðar og er fellistigi upp á það á stigapallinum. 
- Sameiginlegur geymsluskúr er fyrir framan húsið.
- Húsið var málað að utan sumarið 2025.
- Leiksvæði er við hliðina.
- Vinsæl staðsetning - gott útsýni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. ágú. 2019
31.800.000 kr.
35.000.000 kr.
117.7 m²
297.366 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone