Opið hús: Vallartröð 10, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 19. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignin Vallartröð 10 er skráð sem hér segir 2ja herbergja íbúð en búið er að færa eldhúsið inní stofu þannig að í dag er eignin nýtt sem 3ja herbergja íbúð
Birt stærð 59.1 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór, lgf í síma 6905123, tölvupóstur [email protected].
Jóhanna M Jóhannsdóttir,lgf, í síma 8200788, tölvupóstur [email protected]
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara í barnvænu hverfi. Frábær fyrstu kaup.
- Nýleg eldhúsinnrétting
- Nýlegar hurðar
- Nýlegt harðparket
- Ný rafmagnstafla
- Búið að skipta um frárennsli og dren fyrir framan hús (norðan megin)
Þvottahús: með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél. Í þvottahúsi eru inntök fyrir hita.
Hol/gangur: með harðparketi, skápur eða lítil geymsla.
Stofa: björt stofa í norður með harðparketi á gólfi.
Herbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi.
Eldhús: rúmgott eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og nægt pláss fyrir eldhúsborð, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: nýlega endurnýjað, flísar á veggjum og gólfi, sturta sem gengið er inn í, handklæðaofn, litlum glugga og upphengt salerni.
Geymsla: köld geymsla
Myndir sem sýna kozy stemmingu eru tölvuteiknaðar og eiga að gefa hugmyndir um útlit og nýtingu eignarinnar.
Sameiginleg stór lóð og bílastæði við húsið. Íbúðin er vel staðsett í litlu fjölbýli í göngufæri frá allri helstu þjónustu, verið er að bæta við leikskóla í hverfinu sem opnar næsta haust. Kópavogsskóli, Mennaskólinn í Kópavogi, Kópavogslaug, Heilsugæsla Kópavogs, Krónan, Bónus er í göngufæri.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.