Opið hús: Veghús 31, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 18. maí 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, kaffihús, verslanir, sundlaug, íþróttamiðstöð o.fl.
Framkvæmdir á íbúð að sögn eiganda:
- Eldhús endurnýjað árið 2020; innréttingar, blöndunartæki og eldhústæki.
- Baðherbergi endurnýjað árið 2020; flísalagt, sturta gerð, nýtt klósett, nýr vaskur og skápur, nýr spegill. Þvottaaðstaða endurnýjuð 2023 svo hægt væri að vera með þvottavél og þurrkara.
- Nýjar hurðar settar á fataskáp í svefnherbergi árið 2022.
- Forstofueining endurnýjuð árið 2024.
Framkvæmdir í húsinu:
- Skipt um lyftur í sameign, skipt um gólfteppi í sameign og hún máluð fyrri hluta árs 2025.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá HMS 70,2 m2.
Nánari lýsing:
Forstofa: Af snyrtilegri sameign með lyftu er gengið inn í íbúðina sem er parketlögð utan baðherbergis/þvottahúss.
Anddyri: Komið er inn þar sem fallegur nýlegur fataskápur.
Hol er miðja íbúðarinnar og tengir öll rými hennar.
Eldhús er með "U" laga hvítri innréttingu með viðarborðplötu. Á einum vegg nær innréttingin upp í loft. Háfur yfir helluborði, bakaraofn. Endurnýjað 2020.
Stofa er björt með útgengi út á suðaustursvalir. Útsýni er til Úlfarsfells/dals.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og í innbyggðum sturtuklefa með dökkum flísum. Rúmgóð sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni, skápur og borð við handlaug og spegill með ljósi ofan borðplötu. Endurnýjað 2020.
Þvottaaðstaða er inn á baði með nýrri innréttingu fyrir þvottavél/þurrkara. Endurnýjað 2022.
Geymsla er 3,5 fm við hlið íbúðar með hillum.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Húsvörður er starfandi í húsinu.
Samantekt: Í heildina er um að ræða mikið enurnýjaða, óvenju rúmgóða og vel skipulagða 2ja herbergja vel staðsetta eign, þar sem stutt er í skóla og alla þjónustu.
Mjög stór lóð er í kringum húsið og aðkoma að húsinu er góð með stóru og miklu bílaplani með miklum fjölda bílastæða.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður