Lýsing
Um er að ræða 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð ásamt stæði í bílageymslu við Hrísrima 7 í Grafarvogi. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 93,1 fm merkt 01-02 og þar af 6,4 fm geymsla merkt 00-01 ásamt 35,1 fm stæði í bílageymslu merkt: 00-06 samtals 128,2 fm. Eignin er tilvalin fyrir þann laghenta og þarfnast endurbóta og er áhugasömum kaupendum bent á að skoða hana mjög vel og er hún seld í því ástandi eins og hún er í dag. Myndir að innan hjá fasteignasala.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, fataskápur. Frá forstofu tekur við stofa og borðstoða. Frá stofu er unnt að ganga út hellulagða verönd. Eldhús með innréttingu, gluggi í eldhúsi. Baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt stæði í bílageymslu og aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Parket og dúkur á gólfum.
Grunnskóli og leikskóli í göngufæri og göngustígar liggja um allt hverfið. Stutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu og afþreyingu í Spönginni og Egilshöll.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat