Lýsing
Miklaborg kynnir: Þriggja herbergja 87,6 fm íbúð á annari hæð auk 21,1 fm bílskúrs (samtals 107,8 fm) við Hverafold 27, Grafarvogi. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Barnaherbergi með parketi á gólfi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp. Stofa og borðstofa með parketi á gólfi óg útgengi út á suður svalir. Eldhús með flísum á gólfi, beiki innréttingu og hvítum hurðum, bakaraofni, helluborði, viftu og plássi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Inni í eldhúsi er pláss fyrir borðkrók. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari með sturtu aðstöðu, hvítri innréttingu, speglaskáp, salerni og handklæðaofni. Sér geymsla er í kjallara, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Bílskúr með máluðu gólfi, rafmagnshurða opnara, heitu og köldu vatni.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 6912312 eða [email protected]