Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1939
72,6 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 19. maí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgóð og björt þriggja herbergja 72,6 fm íbúð á annarri hæð í mikið endurnýjuðu húsi við Víðimel 32 í Vesturbænum. Húsið hefur fengið mikið og gott viðhald en meðal annars hefur húsið verið endursteinað og skipt um alla glugga. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og tómstundir.**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlega inngang með efri hæð. Fallegur og bjartur stigi liggur upp á efri hæð. Út frá stigapalli efri hæðar eru sameiginlegar svalir.
Forstofa/hol: Parketlagt með fatahengi.
Eldhús: Parketlagt með fallegri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn. Eldhús var gert upp fyrir ca. 5 árum.
Stofu: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og frábæru útsýni.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gófli og góðum fataskáp.
Herbergi: Rúmgott með parketi á gólfi. Tengist stofu með rennihurð og gæti hæglega einnig nýst sem borðstofa.
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Góður, opnanlegur gluggi. Baðherbergi var gert upp fyrir ca. 5 árum.
Framkvæmdir og viðhald:
Til viðbótar því að húsið var endursteinað, gluggar endurnýjaðir og ný stétt sett í kringum húsið þá var á árunum 2024-2025 gerðar endurbætur á frárennsliskerfi og sett snjóbræðslukerfi. Nýja frárennsliskerfið þjónar öllu húsinu að undanskildu salerni og eldhúsi í kjallara. Lagnaaðstaða er þó til staðar fyrir tengingu þess við nýja kerfið. Endurnýjað frárennsliskerfi nær út í gangstétt. Auk þess voru gerðar endurbætur á efri tveimur hæðum, nýjar hitalagnir lagðar í kjallara og efri hæð árið 2020. Hitalagnir í lagnarými í kjallara voru endurnýjaðar og komið fyrir varmaskiptakerfi fyrir heitt neysluvatn á öllum hæðum og útirýmum.
Frábær staðsetning í Vesturbænum við fallega götu þar sem stutt er í þjónustu, skóla og útivist. M.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Háskóla Íslands og Háskólabíó. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. jan. 2016
28.100.000 kr.
28.250.000 kr.
73.9 m²
382.273 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026