Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Lofnarbrunnur 14

113 Reykjavík

99.500.000 kr.

786.561 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2510778

Fasteignamat

93.750.000 kr.

Brunabótamat

90.570.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
126,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 26. maí 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Lofnarbrunnur 14, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. maí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega og bjarta 5 herbergja íbúð á 2. hæð með svölum og rúmgóðu bílastæði í bílakjallara í nýlegu lyftu fjölbýli í Lofnarbrunni 14, Úlfarsárdal. Frábært útsýni er úr eigninni til suðurs.  Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu og því viðhaldslétt. 

Smelltu hér til sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 126,5 fm. Íbúðin sjálf er 121,4 fm og geymsla 5,1 fm.

Nánari lýsing:
Forstofugangur
með hvítlökkuðum skápum.
Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Borðstofa rúmgóð við eldhús.
Eldhús með hvítlakkaðri innréttingu með mattri áferð og svartri borðplötu. Í borðplötu er yfirfelldur stálvaskur með borði og einnar handar blöndunartæki. Efri skápar að hluta til svört plastlögð eik. Eldavél með keramikhelluborði, ofn og innfellda uppþvottavél.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum. 
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi III er rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi IIII er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er með hvítlakkaðri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Tengi og gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. 

Sérgeymsla er í kjallara merkt -102.
Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Falleg fjölskyldueign og leik- og grunnskóli, íþróttaaðstaða (Fram) og sundlaug í göngufæri. Stutt í alla helstu þjónustu og stofnbrautir. Stutt í útivist og góðar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]





 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Aðalsteinn Jón Bergdal
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. nóv. 2020
23.500.000 kr.
65.900.000 kr.
126.5 m²
520.949 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík