Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1954
57,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 27. maí 2026
kl. 17:00
til 17:30
Fasteignasali tekur á móti áhugasömum
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Afar björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð í risi á eftirsóttum stað við Skaftahlíð. Íbúðin er skráð 57,7 fm er er töluvert stærri að gólffleti þar sem hún er að hluta til undir súð. Einnig er óskráð rými uppi í efra risi með góðum glugga sem í dag er nýtt sem svefnherbergi. Húsið hefur fengið gott viðhald og hefur m.a. þakjárn verið endurnýjað sem og hluti glugga í íbúð. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.Nánari upplýsingar veitir Lilja s. 649-3868 eða [email protected]
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing eignar:
Inngangur: Gengið er inn um sameiginlegan inngang einni annarri íbúð. Stigagangur er teppalagður og mjög snyrtilegur.
Stigapallur og svalir: Á stigapalli fyrir framan íbúð er útgengi á rúmgóðar vestursvalir. Á stigapalli er einnig gott pláss fyrir fatahengi.
Forstofa/hol: Parketlagt og tengir holið saman önnur rými íbúðar.
Eldhús: Snyrtileg eldri innrétting, borðkrókur og stórir gluggar með góðu útsýni. Ágæt geymsla er á aðra hönd út frá eldhúsi. Í hinum endanum er lítið búr með innréttingu. Hvorugt rými er hluti af skráðum fermetrum.
Stofa: Mjög björt og rúmgóð með stórum gluggum og fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Borðstofa: Opin við stofu með parketi á gólfi. Þetta rými var áður herbergi skv. teikningu og væri mjög auðvelt að breyta því aftur til fyrra horfs.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með salerni, innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Góður opnanlegur gluggi og handklæðaofn.
Háaloft/herbergi: Frá holi er stigi upp á háaloft þar sem er gott rými sem í dag er nýtt sem svefnherbergi. Góður opnanlegur gluggi. Þetta rými er utan skráðra fermetra.
Þvottahús: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús. Innangengt í gegnum sameign.
Geymsla: Í kjallara er ágæt geymsla sem tilheyrir íbúð.
Garður og lóð: Gróin lóð með sameiginlegum grasflötum.
Íbúðin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi miðsvæðis í borginni og í mjög þægilegu göngufæri við skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði á Klambratúni og við Öskjuhlíð. Mjög gott aðgengi út á helstu umferðaræðar og stutt í almenningssamgöngur með strætótengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Viðhald á undanförnum árum að sögn seljanda:
2017 - Skipt um glugga á suður og austurhlíð.
2018 - Skipt um rafmagnstöflu.
2020 - Skólplagnir fóðraðar.
Járn á þaki var endurnýjað ca. 2005
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. des. 2021
35.600.000 kr.
33.000.000 kr.
57.7 m²
571.924 kr.
25. nóv. 2015
20.200.000 kr.
29.500.000 kr.
57.7 m²
511.265 kr.
26. júl. 2011
14.400.000 kr.
19.500.000 kr.
57.7 m²
337.955 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026