Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
einbýlishús

Hjarðarholt 2

800 Selfoss

74.900.000 kr.

513.365 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2186383

Fasteignamat

74.200.000 kr.

Brunabótamat

69.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
145,9 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 7. júní 2026 kl. 14:00 til 14:30

Opið hús: Hjarðarholt 2, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd sunnudaginn 7. júní 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

Lýsing


Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í sölu Hjarðarholt 2 , 800 Selfossi.
Mjög snyrtilegt og vel viðhaldið 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð auk sértæðs bílskúrs, á vinsælum stað og í göngufæri við nýja miðbæ Selfoss. 
Í bílskúr er möguleiki á að útbúa auka íbúðarrými þ.s. þar eru nú þegar til staðar sér inngangar, salerni gluggar ofl. !
Fasteignamat 2026 er 74.200.000.- en verður 00.000 f. árið 2027


- Eignin er skráð skv. HMS 145,9 fm. Íbúðarhlutinn 105,4 fm og bílskúr 40,5 fm
- Einbýlishús á einni hæð - bygg.ár 1967/1976 - Einn eigandi
- Húsið er steypt og var klætt árið 2003.
- 2014 Skipt um járn og pappa á þaki
- Gott skipulag - 3 svefnherbergi (möguleiki á íbúðareiningu í bílskúr)
- Óvenju stór lóð 770 fm - liggur að stóru afgirtu leiksvæði, aftan til
- Lokuð suðvestur verönd með skjólveggjum aftan við húsið. Grasflöt í bakgarði og þvottasnúrur
- Munstursteypt innkeyrsla með snjóbræðslu
- Afhending við kaupsamning 


Húsið skiptist í: Forstofu, hol, eldhús, stofu,  baðherbergi, 3 svefnherbergi og þvottahús.  Bílskúr.
Nánari lýsing;

Forstofa: Flísalögð með fataskáp.
Hol: Parketlagt. Opnast við eldhús og af því liggja allar aðrar vistarverur hússins.
Eldhús: Rúmgott parketlagt. U-laga eikarinnréttingu og rúmgóður borðkrókur. Helluborð, ofn í hæð og vifta. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt. Tveir gluggar.
Stofa: Rúmgóð og björt, með gluggum á 2 vegu. parketlögð. Útgengi er þaðan á lokaða verönd sem snýr út í garðinn, með skjólgirðinu. 
Svefnherbergi I: Parketlagt mjög rúmgott með skáp.
Svefnherbergi II: Parketlagt, rúmgott með skáp.
Svefnherbergi III: Parketlagt, rúmgott með skápum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, sturtuklefi, hvít vaskinnrétting. 
Þvottahús: Gengið beint inn í það á hlið hússins. Flísalagt með hillum.
Geymsla:  Afstúkað geymslurými er í þvottahúsi með hillum.
Bílskúr: Er sérstæður og skráður 40,5 fm. Byggingarár 1976. Inngönguhurð á hlið úr bakgarði. Gólf steypt, 2 niðurföll,  rafdrifin innkeyrsluhurð. Heitt og kalt vatn. Fjórir gluggar eru á langhlið skúrsins og snúa út í garðinn. Góðir möguleikar eru á að útbúa íbúðarrými þar sem niðurföll, vötn, gluggar og aðgengi eru til staðar.

Lóðin: Er stór skráð 770 fm. Gróin, afgirt, með háum trjám og liggur að opnu leiksvæði bakatil. 
Af bílaplani og úr stofu er aðgengi að lokaðri suður verönd með skjólveggjum aftan við húsið. 
Planið er munstursteypt með snjóbræðslukerfi.

Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á besta stað í grónu hverfi á Selfossi.
Eign sem býður upp á mikla möguleika, á fallegum stað á Selfossi þar sem stutt er í náttúrufegurð, gönguleiðir og örstutt í leikskóla, verslun sem og þjónustu nýja miðbæjarins.

Allar nánari upplýsingar veitir  Elín Viðarsdóttir lgfs, [email protected], gsm. 695-8905

Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone