Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1959
108 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
ATH ÞAÐ ER VERIÐ AÐ GERA VIÐ GÖTUNA OG BEST ER AÐ LEGGJA VIÐ KLEPPSVEG 30-40 OG LABBA NIÐUR GÖGNUSTIGIN NIÐUR AÐ HÚSINU.
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög fallega og mikið endurnýjaða 4ra herbergja 108 fm hæð á 1. hæð með sérinngangi við Rauðalæk 51 í Reykjavík.
Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, geymslu og þvottahús.
// Íbúðin er einstaklega björt með glugga í allar áttir.
// Bílskúrsréttur fylgir eigninni.
// Nóg af stæðum fyrir utan.
// Stórar svalir.
// Stór garður og róluvöllur við hliðina á húsinu.
// Þvottaaðstaða innan íbúðar.
// Mjög góð staðsetning og stutt í alla þjónustu.
// Húsið er bakhús í eftirsóttri götu í Laugardal.
Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér
Nánari lýsing:
Sérinngangur er í íbúðina sem er á 1.hæð (merkt 0101) - Upphitaðar tröppur.
Forstofa: Flot á gólfi og með stórum fataskáp.
Eldhús: Endurnýjað að fullu árið 2023. Opnað inn í borðstofu og glæsileg vönduð innrétting með eyju sett upp. Eldhúsið er rúmgott með góðu skápa- og borðplássi. Ný innbyggð eldhústæki.
Borðstofa: Rúmgóð með flotuðu gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum og útgengi á rúmgóðar svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með fallegri innréttingu og speglaskáp. Walk in sturta og upphengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Parketlagt með stórum fataskáp.
Barnaherbergi 1: Mjög rúmgott herbergi, parketlagt með stórum fataskáp.
Barnaherbergi 2: Parketlagt með fataskáp.
Geymsla: Sérgeymsla er í kjallara.
Þvottahús: Er í sameign í kjallara.
Bílskúrsréttur: Fylgir eigninni.
Einstaklega skemmtileg staðsetning í fallegu umhverfi. Stutt í Laugardalinn - Stutt í skóla, leikskóla og alla þjónustu.
Yfirlit framkvæmda síðustu ára:
Framkvæmdir inni:
2023
Eldhúsið endurnýjað að fullu.
Eldhúsið opnað inn í borðstofu. Burðarveggur tekinn niður og stálbiti settur upp af Sagtækni. Eldhúsinnrétting frá IKEA, saman sett og uppsett af Svansverk.
Borðplata, sérsmíðaður tækjaskápur og innbyggður háfur frá Svansverk.
Ný innbyggð eldhústæki.
Gólf í eldhúsi, borðstofu, forstofu og á gangi flotað.
Nýjar hurðir settar á fataskápa í öllum herbergjum.
Allir veggir og loft málaðir. Gluggakistur lakkaðar.
Nýjar innréttingar á bað. Sturtugler endurnýjað.
Skipt um þrýstijafnara fyrir hitann á íbúðinni.
2017
Geymsla í sameign endurnýjuð að fullu. Veggir, loft og gólf máluð. Ný
innrétting og dúkur á gólf.
2016
Nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina. Skipt um tengla og sett upp ný rafmagnstafla.
Baðherbergi endurnýjað. Flísalagt, nýtt upphengt salerni, ný blöndunartæki og
handklæðaofn. Baðkari skipt út fyrir stóra sturtu.
Parket pússað.
Nýir innbyggðir PAX fataskápar frá IKEA inn í öll svefnherbergi.
Myrkratjöld frá Luxaflex inn í öll svefnherbergi.
Framkvæmdir að utan:
2025
Ruslageymsla og hjólaskúr uppgerður.
Grindverk málað.
2019
Skipt um glugga á suður og austur hlið hússins, valdir voru vandaðir íslenskir gluggar
frá Berki.
2017
Húsið málað og skipt um rennur utan á húsinu.
*Fyrri eigendur skiptu um járn á þaki.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. feb. 2016
32.450.000 kr.
38.900.000 kr.
108 m²
360.185 kr.
3. sep. 2007
19.360.000 kr.
28.900.000 kr.
108 m²
267.593 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026