Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2007
131,5 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Hjólastólaaðgengi
Bílastæði
Lyfta
Laus strax
Lýsing
Björt og afar falleg fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð (6. hæð) með stórkostlegu útsýni yfir Hafnarfjörð og nágrenni. Frá íbúðinni má meðal annars njóta útsýnis til Esjunnar og yfir hið víðáttumikla Hafnarfjarðarsvæði. Skipulag íbúðarinnar er einstaklega vandað og vel úthugsað, en hún býður upp á tvennar svalir, tvö baðherbergi og sérmerkt stæði í bílageymslu.
Eignin er staðsett að Skipalóni 6 í Hafnarfirði og er ætluð fyrir 50 ára og eldri.
Samkvæmt HMS er heildarstærð eignarinnar 131,5 fm, þar af er íbúðin sjálf 120,7 fm og sérgeymsla í kjallara 10,8 fm.
Forstofan með flísalögðu gólfi og góðum fataskápum. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi, og þaðan er útgengt á yfirbyggðar suðursvalir. Eldhúsið er opið og samræmist vel alrýminu, með eyju, helluborði, viftu og ofni í vinnuhæð, auk rýmis fyrir tvöfaldan ísskáp. Úr eldhúsi er einnig útgengt á svalir sem snúa í norður.
Svefnherbergin eru þrjú, öll parketlögð, þar af eru fataskápar í tveimur þeirra. Eitt herbergjanna er með rennihurð inn af stofu og er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi. Frá hjónaherbergi er aðgengi að sérbaðherbergi sem er flísalagt með innréttingu og baðkari.
Auk þess er annað baðherbergi við forstofu, einnig flísalagt, með sturtu og snyrtilegri innréttingu. Inn af því er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu og innréttingu.
Í kjallara fylgir sérgeymsla og sérmerkt bílastæði í bílageymslu (B36). Sameign hússins er snyrtileg og þar er meðal annars hjóla- og vagnageymsla. Húsfélagið býður einnig upp á glæsilegan veislusal sem rúmar um 50 manns í sæti.
Staðsetningin er góð, í stuttri fjarlægð frá miðbæ Hafnarfjarðar þar sem finna má fjölbreytta þjónustu, veitingastaði og menningarlíf.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / [email protected]
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. nóv. 2007
16.045.000 kr.
36.300.000 kr.
131.5 m²
276.046 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026