Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Nýbýlavegur 66

200 Kópavogur

67.900.000 kr.

922.554 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2064524

Fasteignamat

55.750.000 kr.

Brunabótamat

43.840.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1969
svg
73,6 m²
svg
2 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Bjarta og rúmgóða íbúð á miðhæð með sérinngangi, suðursvölum, stúdíóherbergi í kjallara ásamt bílskúr.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta síðustu árin.

Eigandi hefur látið þar til bæra aðila mæla upp stærð eignarinnar og hefur komið í ljós að eignin er rúmlega 16 fm stærri en skráð og birt stærð er. Hægt er hugsanlega að fara í uppfærslu á eignaskiptayfirlýsingu og fá skráningu breytt, kjósi nýr eigandi það, byggt á umræddum gögnum.

Stækkunin er skráð á söluyfirliti þessu undir liðnum óskráðir fermetrar, hægt er að fá nýju mæligögnin samhliða öðrum gögnum um eignina hjá fasteignasala.

Nánari lýsing:
Forstofa - komi er inn í forstofu með fatahengi.
Baðherbergi - með flísum á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtu, hirslur með vaski og wc.
Svefnherbergi - eru tvö, annað rúmgott með góðum fataskáp og hitt minna ekki með skáp, parket á gólfum.
Eldhús - er með L innréttingu, bakaraofni, helluborði og viftu, tengi fyrir uppþvottavél og plássi fyrir einfaldan ísskáp.
Stofa/borðstofa - eru opin við eldhúsið, útgengt úr stofu á suðursvalir, parket á gólfi alrýmis.
Geymsla/stúdíóherbergi - er á neðri hæð undir siganum og er aðgengi að sameiginlegu klósetti á sameign.
Þvottaherbergi - er einnig í kjallara með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr - er um 18,4 fm að stærð (skv. nýrri mælingu), hiti ásamt heitu og köldu vatni og er einkabílastæði framan við bílskúrinn.

Varðandi húsfélagsmál:
Nýlega var stofnað húsfélag í húsinu og er innheimt þar eingöngu í sjóð sem hugsaður er til framkvæmda í framtíðinni.
Enginn rekstur er hjá húsfélagi né ekkert greitt rekstrarlega varðandi sameign.
Húsið var múrviðgert og málað ásamt því að þak var yfirfarið, metið í lagi og málað 2023.

Eignin er vel staðsett í Kópavogi og stutt í alla helstu þjónustu ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvoginum.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / [email protected]
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Lifum Heima Fasteignasala

phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. okt. 2021
32.750.000 kr.
42.500.000 kr.
73.6 m²
577.446 kr.
20. des. 2013
16.000.000 kr.
20.700.000 kr.
73.6 m²
281.250 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Lifum Heima Fasteignasala

phone