Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halldór Már Sverrisson
Vista
fjölbýlishús

Holtsgata 16

101 Reykjavík

69.600.000 kr.

1.070.769 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2001070

Fasteignamat

62.400.000 kr.

Brunabótamat

40.970.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1929
svg
65 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 15. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Holtsgata 16, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 15. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30. Halldór Már, löggiltur fasteignasali verður á staðnum.

Lýsing

Einstaklega glæsileg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja risíbúð á efstu hæð í vönduðu húsi á einum eftirsóttasta stað miðbæjarins.
Íbúðin státar af stórum suðurþaksvölum og björtu, fallegu rými. Með eigninni fylgja ísskápur og uppþvottavél. Athygli er vakin á því að gólfflötur íbúðarinnar er meiri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna, þar sem hluti rýmis er undir súð. 

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 65 fm, þar af geymsla 5,4 fm.


Nánari lýsing:
Stigagangur: Mjög snyrtilegur og vel við haldinn stigagangur að íbúðinni.
Hol: Parketlagt og tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
Eldhús: Nýlega uppgert með vandaðri innréttingu og nýjum tækjum. Flísar á gólfi og milli skápa, gufugleypir og ný blöndunartæki. Innbyggð uppþvottavél, ásamt ísskáp og þvottavél sem fylgja eigninni.
Stofa: Björt og rúmgóð með fallegum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er á stórar suðurþaksvalir.
Svefnherbergi I: Rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Parketlagt herbergi, hentugt sem barnaherbergi, skrifstofa eða gestaherbergi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert, mjög rúmgott og smekklega hannað. Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, handklæðaofn og innangengin sturta. Gluggi er á baðherbergi.
Geymsla: Sérgeymsla í bakgarði hússins, um 5,4 fm að stærð.

Húsið og sameign:
Nýlegir gluggar í íbúðinni.
Skólplagnir hússins voru fóðraðar sumarið 2020
Sameiginlegur pallur í bakgarði.
Hjóla- og vagnageymsla í sameiginlegu porti.

Um er að ræða einstaklega fallega og vel staðsetta eign í hjarta miðbæjar Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, veitingastaði og menningarlíf.

Allar upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 898 5599 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er 3.800 kr. af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu skv. kauptilboði
Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.

Atvinnueign ehf.

Atvinnueign ehf.

Síðumúli 13, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. des. 2021
37.100.000 kr.
53.200.000 kr.
63.2 m²
841.772 kr.
24. okt. 2016
24.350.000 kr.
92.000.000 kr.
208.9 m²
440.402 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Atvinnueign ehf.

Atvinnueign ehf.

Síðumúli 13, 108 Reykjavík
phone