Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Vista
hæð

Byggðavegur 84

600 Akureyri

48.900.000 kr.

793.831 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2145095

Fasteignamat

36.200.000 kr.

Brunabótamat

34.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
61,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Byggðavegur 84. Glæsileg 2-3 herbergja 61.6 fm íbúð á vinsælum stað á Brekkunni sem var að mestu leyti endurnýjuð að innan árið 2022. Sér inngangur er í eignina austanmegin á húsinu. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, sundlaug og verslun. 

Eignin skiptist í forstofu/ hol, eldhús/borðstofu, 2 svefnherbergi (annað skráð sem stofa á teikningu) og baðherbergi ásamt sér geymslu, sameiginlegu þvottahúsi og sameiginlegri geymslu.  


Forstofa/hol: Vínilparket á gólfi, þaðan er gengið inn í önnur rými. 
Eldhús: Var endurnýjað 2022 á smekklegan hátt. Dökkgrá innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og ofn í vinnuhæð.
Borðstofa/stofa: Er í opnu rými með eldhúsi. Sérhannaður bekkur er í rýminu með geymsluplássi.
Svefnherbergi 1: Er skráð sem stofa á teikningu er með skápum, vínilparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Er með fataskáp, vínilparket á gólfi. 
Baðherbergi: Var endurnýjað 2022, það er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gluggi er á baðherbergi ásamt sjálfvirkri viftu. 
Sér geymsla í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt og hver með tengi fyrir sína vél. 

Eignin var nánast öll endurnýjuð að innan 2022 
* Ný gólfefni á alla íbúðina, vínilparket á öllum gólfum nema baðherbergi þar eru flísar.
* Allar innihurðar endurnýjaðar ásamt því að rennihurð var sett í hol til að fela hurð inn í sameign. 
* Skipt um alla ofna 2022
* Eldhús endurnýjað og stækkað hurðarop.
* Neysluvatnslagnir endurnýjaðar innan íbúðar
* Baðberbergi endurnýjað
* Búið er að endurnýja allt gler.
* Innkeyrsla malbikuð 2023.
* Húsið múrviðgert og skip um þakrennur haust 2024.
* Húsið var málað sumarið 2025.

- Lóðin er sameiginleg, gróin með trjám og grasfleti.  
- Frábær stasetning.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Helgi Steinar Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. maí. 2025
31.800.000 kr.
44.500.000 kr.
10001 m²
4.450 kr.
4. nóv. 2022
20.050.000 kr.
30.000.000 kr.
61.6 m²
487.013 kr.
14. júl. 2020
20.000.000 kr.
23.000.000 kr.
61.6 m²
373.377 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri