Opið hús: Hátún 4, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 0203. Eignin verður sýnd mánudaginn 22. júní 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
Nánari lýsing.
Anddyri: Ágætt fatahengi. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Handlaug með neðri skápum, fyrir ofan handlaug er spegill, skápur fyrir ofan WC, baðkar með sturtuhaus, flísar á gólfi og á veggjum.
Svefnherbergi: Rúmgott með glugga til suðurs. Á gólfi er parket og innan herbergis eru rúmgóðir fataskápar.
Eldhús og stofa: Í sameiginlegu björtu rými, eldhúsinnrétting er með ágætu skápaplássi, borðplata þarfnast endurnýjunnar sem og eldavél. Í rými eru stórir nýlegir gluggar, parket á gólfi og útgengi á suður svalir eignar.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús, sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sérgeymsla íbúðar sem er ekki meðtalinn í birtri stærð.
Í anddyri húseignar eru flísar á gólfi en á stigagöngum er teppi.
Gluggar á austurhlið húseignar hafa verið endurnýjaðir sem og skólpstammi.
Vel staðsett eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í miðbæinn og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.