Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Steindór Guðmundsson
Vista
einbýlishús

Laxalækur 9

800 Selfoss

109.900.000 kr.

575.996 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2340636

Fasteignamat

112.650.000 kr.

Brunabótamat

116.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
190,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu:  Snyrtilegt, nýlegt einbýlishús 140,2 fm ásamt sambyggðum bílskúr, 50,6 fm samtals 190,8 fm.  Húsið er byggt árið 2018 úr timbri, klætt með báru og timbri og járn er á þaki.  Húsið stendur innarlega í botnlanga í rólegu hverfi í Fosslandinu á Selfossi. Húsið stendur á 840 fm eignalóð. Stór sólpallur ca 120 fm með skjólgirðingu og heitum potti ásamt fínum ca 15 fm geymsluskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi og inn af því er gestasalerni. Fjögur fín svefnherbergi, þrjú þeirra með fataskápum.  Bjart og stílhreint eldhús í opnu rými við rúmgóða stofu og borðstofu þar sem útgengt er út í stóran sólpall með skjólgirðingu og heitum potti. Flísalagt baðherbergi með upphengdu wc, innréttingu, handklæðaofni, sturtu með glervegg og gönguhurð út á sólpall. Innangengt er í rúmgóðan, bílskúr með stórri innkeyrsluhurð og uppteknu lofti. Þvottahús með flísum á gólfi og góðri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnsluhæð.  
Á gólfum er snyrtilegt vínilparket, innréttingar eru frá IKEA og húsið er kynnt með svæðskiptum gólfhitakerfi.  Í þeim hluta hússins sem telur stofu- og eldhús er upptekið loft með ljósum loftaþyljum og innfeldri ledlýsingu.  Í öðrum rýmum er niðurtekið loft sem einnig er með hvítum loftaþyljum og lýsingu.
Garðurinn er þökulagður og möl í bílaplani. 

Í alla staði virkilega fínt, nýlegt einbýli á eignalóð á fínum stað á Selfossi.

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected]
Hringið og bókið skoðun.


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. des. 2017
4.790.000 kr.
41.600.000 kr.
190.8 m²
218.029 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum