Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Ásakór 10

203 Kópavogur

109.900.000 kr.

662.447 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2284057

Fasteignamat

97.200.000 kr.

Brunabótamat

83.040.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
165,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

** Opið hús fimmtudaginn 25. júní frá kl. 16:30 til 17:00 -  Ásakór 10 íbúð 102 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **  

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með stórri timburverönd ásamt bílskúr og stæði í lokaðri bílageymslu við Ásakór 10 í Kópavogi. Eignin er skráð 165,9 m2 þar af íbúð 115,7 m2 og bílskúr 50,2 m2. Bílstæði merkt B08 í bílageymslu fylgir eigninni. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, gang, eldhús, stofu og borðstofu. Bílskúrinn er staðsettur í bílakjallaranum. rúmgóður og er geymsla innaf honum. 
Eignin er staðsett í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í nágrenninu eru grunnskóli, leikskóli, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við náttúrusvæði.
Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem er stutt í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.
Frábært staðsetning í næsta nágrenni við grunnskóla, leikskóla, sundlaug, íþróttasvæði og fallegar gönguleiðir við náttúrusvæði.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Gangur er með fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á stóra afgirta timburverönd í suðurátt/sólarátt.
Eldhús er með U-laga innréttingu og borðkrók. Í innréttingu er bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottarvél í innréttingu. 
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fastaskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er innaf forstofu, með vinnuborði, vaski, skápum og snúrum, flísar á gólfi. Gott skápapláss.
Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni fyrir framan bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður með flísum á gólfi. Innrétting, rafdrifinn bílskúrshurðaopnari, rafmagn, hiti og rennandi vatn.
Sérgeymsla með hillum er inn af bílskúr.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.

Verð kr. 109.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. mar. 2013
30.250.000 kr.
35.500.000 kr.
165.9 m²
213.984 kr.
6. júl. 2007
29.075.000 kr.
33.800.000 kr.
165.9 m²
203.737 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ