Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ólafur Björnsson
Vista
fjölbýlishús

Álalækur 11

800 Selfoss

43.900.000 kr.

687.011 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2504966

Fasteignamat

45.100.000 kr.

Brunabótamat

37.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
63,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.

Lýsing

LÓB fasteignir kynna 63,9m2 endaíbúð á jarðhæð með einu svefnherbergi á Selfossi.

** Get sýnt eignina með stuttum fyrirvara** ** Laus til afhendingar við kaupsamning.  **


Um er að ræða fasteignina Álalækur 11, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 250-4966 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Álalækur 11 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 250-4966, birt stærð 63.9 fm
Björt og vel skipulögð endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, hellulagðri verönd og sérgeymslu
Íbúðin er falleg og vel skipulögð á jarðhæð í vönduðu fjölbýlishúsi. Um er að ræða endaíbúð, sem nýtur þess að hafa glugga á gafli hússins og því meira birtuflæði en sambærilegar íbúðir í miðju húsinu.
Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu og eldhúsi, svefnherbergi og stórt baðherbergi. Frá stofu er útgengt á hellulagða verönd og lóð, auk þess sem hægt er að ganga inn í íbúðina bæði að framanverðu og frá veröndinni að aftan.
Við inngang tekur á móti björt forstofa með flísum á gólfi. Inn af henni er opið og rúmgott alrými þar sem eldhús og stofa mynda notalega heild. Eldhúsið er með fallegri ljósri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Stofan er björt með stórum gluggum á tvo vegu sem hleypa birtu inn í rýmið. Svefnherbergið er rúmgott með fataskápum og glugga á gafli hússins. Baðherbergið er rúmgott með sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu við vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ljóst plastparket á gólfum að utan forstofu og baðherbergi en þar eru dökkar flísar á gólfi.

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur [email protected]. Fasteignin er í eigu dánarbús svo seljendur geta ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína að öllu leyti í ljósi þess að hafa aldrei búið í eigninni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Vakin er sérstök athygli á því að eigandi íbúðarinnar er dánarbú og getur því ekki veitt ítarlegri upplýsingar um ástand eignarinnar en það sem sést við sjónskoðun. Kaupendur eru hvattir til þess að kanna sér ástand eignarinnar mjög vel af þeim sökum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. feb. 2021
25.650.000 kr.
39.600.000 kr.
205.2 m²
192.982 kr.
27. nóv. 2020
26.400.000 kr.
29.000.000 kr.
63.9 m²
453.834 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar

Eyrarvegi 15, 800 Selfoss
phone