Opið hús: Gerplustræti 25, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 01 01 07. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 30. júní 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 118,2 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Gerplustræti 25 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 118,2 m2 þar af íbúð 105,7 m2 og geymsla 12,5. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaherbergi innaf því og svo geymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð. Steypt verönd og timburverönd í suðurátt. Frábær staðsetning, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er með flísum á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta verönd og timburverönd í suðurátt.
Eldhús er með fallegri innréttingu og eyju. Steinn á borðum. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott herbergi með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með flísum á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, góðri innréttingu, baðkari með sturtu aðstöðu og vegghengdu salerni. Flísar í hólf og gólf. Innaf baðherbergi er þvottaherbergi.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í kjallara. Er skráð 12,5 m2.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B23 fylgir eigninni. Búið er að setja upp hleðslustöð við stæðið sem fylgir.
Eigninni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu þar sem rekki er til að geyma dekk. Þar við hlið er svo er önnur sameiginleg geymsla sem hefur verið nýtt af íbúum.
Verð kr. 82.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.