Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1972
75,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 30. júní 2026
kl. 17:00
til 17:30
Verið velkomin á opið hús þriðjudaginn 30. júní á milli kl 17:00 og 17:30 - Fasteignasali tekur vel á móti áhugasömum. Aðkoma að húsinu er frá Grandavegi.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Aðkoma að húsinu er frá Grandavegi og snýr íbúðin aðeins í þá átt. Íbúðin er skráð 75,7 fm og skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og 6,1 fm sér geymslu í kjallara. Sérmerkt stæði fyrir húsið eru á lóðinni.Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Gengið er inn úr snyrtilegri sameign og inn í rúmgott hol með fatahengi.
Stofa: Rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á góðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Nýlega endurnýjað með innréttingum frá Brúnás, góðu skápa- og vinnuplássi og bakaraofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og góðum fataskáp frá Brúnás.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert með "walk in" sturtu, innréttingum frá Brúnás, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: 6,1 fm sér geymsla í kjallara.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Frábær staðsetning í góðu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir:
Oddný María Kristinsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 777-3711 eða á [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. ágú. 2023
45.650.000 kr.
55.000.000 kr.
75.7 m²
726.552 kr.
20. nóv. 2020
35.250.000 kr.
42.800.000 kr.
75.7 m²
565.390 kr.
5. nóv. 2015
22.150.000 kr.
26.000.000 kr.
75.7 m²
343.461 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026